Fararstjórar frá Norðurlöndunum hittust á undirbúningsfundinum i Berlín. Norræn nefnd Special Olympics er skipuð National Director SO i hverju landi og markmið er að efla samstarf og opna á fleiri tækifæri fyrir aðildarfélögin.
Fararstjórar frá Norðurlöndunum hittust á undirbúningsfundinum i Berlín. Norræn nefnd Special Olympics er skipuð National Director SO i hverju landi og markmið er að efla samstarf og opna á fleiri tækifæri fyrir aðildarfélögin.
Global Games standa nú yfir í Vichy í Frakklandi en leikarnir eru alþjóðaleikar VIRTUS sem eru heimssamtök íþróttafólks með þroskahamlanir. Sundmaðurinn Snævar Örn Kristmannsson hefur þegar landað gullverðlaunum í sundi og frjálsíþróttakonan Stefanía Daney Guðmundsdóttir er búin að setja nýtt Íslandsmet í 400m hlaupi. Snævar landaði gullverðlaunum í 200m flugsundi en Stefanía átti Íslandsmetið sjálf í 400m hlaupi frá árinu …
Í dag miðvikudaginn 17. maí fagnar Íþróttasamband fatlaðra 44 ára afmæli. Sambandið var stofnað þennan dag árið 1979. Framkvæmdastjórn ÍSÍ boðaði til stofnfundar ÍF að Hótel Loftleiðum þennan dag þar sem mættir voru 22 fulltrúar frá 12 héraðssamböndum. Gísli Halldórsson þáverandi forseti ÍSÍ setti fundinn og stýrði. Á tæpri hálfri öld hafa íslenskir íþróttamenn úr röðum fatlaðra borið hróður Íslands …
Íþróttafólk ársins 2022 hjá ÍF var heiðrað í dag á Grand Hótel í Reykjavík. Þetta árið var skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson Íþróttamaður ársins og sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir íþróttakona ársins. Íþróttamaður ársins 2022 Nafn: Hilmar Snær ÖrvarssonAldur: 22 áraFélag: VíkingurÍþróttir: SkíðiÞjálfari: Þórður Georg Hjörleifsson Í annað sinn hlýtur skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson nafnbótina „Íþróttamaður ársins.“ Hilmar var fyrst kjörinn árið …
Í dag 17. maí fagnar Íþróttasamband fatlaðra 43 ára afmæli sínu. Sambandið var stofnað þennan dag 17. maí árið 1979. Stofnfundur ÍF var haldinn að Hótel Loftleiðum þar sem Gísli Halldórsson þáverandi forseti ÍSÍ setti fundinn og stjórnaði. Sigurður Magnússon var kjörinn fyrsti formaður ÍF við fundinn og gegndi því starfi til ársins 1984 en þá tók Ólafur Jensson við …
FARSÆLT SAMFÉLAG FYRIR ALLA Ráðstefna um íþróttir barna og ungmenna fimmtudag 7. april á Hótel Hilton Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu á Hótel Hilton 7. apríl kl. 9-15:30 undir yfirskriftinni Farsælt samfélag fyrir alla – tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi. Á ráðstefnunni verður leitast við að koma auga á þær …
Nú fer að líða að því að Agata Erna Jack sýnir listir sínar í Graz í Austurríki, þar sem haldnir verða fyrstu heimsleikar Special Olympics í dansíþróttum. Special Olympics samtökin (SOI) voru stofnuð árið 1968 af Kennedy fjölskyldunni. Á leikum SOI fá allir tækifæri til keppni við sína jafningja. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland á fulltrúa í danskeppni …
Stöllurnar Ingeborg Eide Garðarsdóttir, Ármann, og Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, FH, lönduðu áðan silfri og bronsi fyrir Íslands hönd á Evrópumeistaramóti IPC í frjálsum. Báðar kepptu þær í kúluvarpi í flokki F37 (hreyfihamlaðir) en aðeins einn sentimeter réði úrslitum hjá þeim vinkonum í dag! Bergrún hreppti silfrið er hún varpaði kúlunni upp á 8,76 metra en Ingeborg landaði bronsinu og aðeins …
Sundmaðurinn Már Gunnarsson setti í kvöld nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 200m fjórsundi S11 á Evrópumeistaramóti IPC í Madeira, Portúgal. Már var ekki langt frá verðlaunasæti á tímanum 2:36,97 mín. sem er nýtt Íslandsmet en Hvít-Rússinn Hryhory Zudzilau landaði bronsinu á tímanum 2:34,62 mín. Már var eini keppandi Íslands á mótinu í dag og fékk Róbert Ísak hvíldardag en báðir …
Nú eru liðin 4 ár frá því ÍF hóf innleiðingu YAP (Young Athlete Project) á Íslandi. Verkefnið var unnið í samstarfi Special Olympics Int. og háskóla í Boston og allt efni er ókeypis og aðgengilegt. Settur er fókus á markvissa hreyfiþjálfun barna, sérstaklega þar sem skert hreyfifærni er til staðar. Snemmtæk íhlutun er þar gífurlega mikilvæg. Á Íslandi var ákveðið …