Bogfimimaðurinn Þorsteinn Halldórsson frá Akri lagði í morgun af stað til Dubai þar sem heimsmeistaramót fatlaðra í bogfimi mun fara fram dagana 19.-27. febrúar. Keppni hefst 22. febrúar í „Compound Open“ eða trissuboga. Alfreð Birgisson þjálfari Þorsteins verður með í för en þeir Þorsteinn hafa síðustu mánuði starfað vel saman við undirbúning mótsins. Þorsteinn er þó ekki einn úr afrekshópi …