Heim 1. tbl 2021 Keppni lokið í Tokyo hjá íslenska hópnum

Keppni lokið í Tokyo hjá íslenska hópnum

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Keppni lokið í Tokyo hjá íslenska hópnum
0
968

Sundmaðurinn Már Gunnarsson lokaði í gær þátttöku Íslands á Paralympics í Tokyo þegar hann tók þátt í undanrásum í 100m flugsundi S11 (blindir). Þetta var fjórða og síðasta grein Más við mótið og síðasta greinin hjá íslenska hópnum.

Már synti á 1:14,86 mín. en sá tími dugði honum ekki til að ná inn í úrslitasundið en af fjórum greinum komst hann í tvígang í úrslit.

Már verður fánaberi Íslands við lokaathöfn Paralympics þann 5. september. Þegar hefur hluti hópsins haldið heim til Íslands en fyrir mót var vitað að keppendur og starfslið þeirra þyrftu að kveðja Paralympic-þorpið ekki síðar en 48 tímum eftir að þeirra keppni lýkur. 

Við á hvatisport.is munum halda áfram að greina frá Paralympics enda af nægu að taka við þessa athyglisverðu leika sem fóru fram í svokallaðri „sóttvarnabúbblu.“

Sækja skyldar greinar
  • Evrópumót Virtus

    Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…
  • Evrópuleikar ungmenna

    Evrópuleikar ungmenna – European Para Youth Games (EPYG) hafa verið haldnir frá árin…
  • Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

    Borðtennisfélag Reykjanesbæjar fékk nýveri ðafnot hluta af gömlu slökkvistöðinni í Reykjan…
Load More By merla
Load More In 1. tbl 2021
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Evrópumót Virtus

Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…