Heim 2. tbl 2021 Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu
0
1,051

Borðtennisfélag Reykjanesbæjar fékk nýveri ðafnot hluta af gömlu slökkvistöðinni í Reykjanesbæ og hafa því skapast ný sóknarfæri í borðtennis á Suðurnesjum. Þaðan hefur einmitt einn fremsti borðtennismaður þjóðarinnar úr röðum fatlaðra komið en það er Jóhann Rúnar Kristjánsson sem m.a. hefur verið fulltrúi Íslands á Paralympics í borðtennis. 

Á dögunum þegar aðstaðan var formlega opnuð var borðtennismaðurinn Hákon Atli Bjarkason á meðal gesta við opnunina. Hákon er afreksmaður í borðtennis og keppir þar í sitjandi flokki. Hákon er einnig fyrrverandi meðlimur í stjórn Borðtennissambands Íslands. Hvatisport.is tók hús á Hákoni sem sagði að þarna væri um að ræða eina af betri aðstöðum á landinu fyrir borðtennis. 

„Þetta er aðstaða með fimm uppistandandi borðum sem eru sérútbúin fyrir borðtennisiðkun og góðu aðgengi. Þarna er í raun allt til alls fyrir borðtennisiðkun og ég vona svo sannarlega að þessi aðstaða verði til þess að iðkendum í borðtennis fjölgi á Suðurnesjum. Jafnt fötluðum sem ófötluðum. Borðtennisfélag Reykjanesbæjar er þarna komið með eina af betri æfingaaðstöðum á landinu og ég get ekki annað en óskað borðtennisfélaginu og Reykjanesbæ til hamingju með þetta,” sagði Hákon við Hvatisport.is

Hér má sjá nánar um nýja aðstöðu Borðtennisfélags Reykjanesbæjar.

Sækja skyldar greinar
Load More By merla
Load More In 2. tbl 2021
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Evrópumót Virtus

Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…