Heim 1. tbl 2021 Special Olympics á Íslandi og Íþróttasamband fatlaðra hóf í janúar 2021 þátttöku í þriggja ára samstarfsverkefni styrktu af Norway Grant.

Special Olympics á Íslandi og Íþróttasamband fatlaðra hóf í janúar 2021 þátttöku í þriggja ára samstarfsverkefni styrktu af Norway Grant.

4 min read
Slökkt á athugasemdum við Special Olympics á Íslandi og Íþróttasamband fatlaðra hóf í janúar 2021 þátttöku í þriggja ára samstarfsverkefni styrktu af Norway Grant.
0
664
Inclusion through sports for children with developmental disabilities

Evrópuskrifstofa Special Olympics og Special Olympics á Íslandi gegna hlutverki „Expert“ sem felst fyrst og fremst í stjórnun og ráðgjöf. Motivation Romania hefur umsjón með framkvæmd verkefnis en þátttökulönd eru auk Íslands, Rúmenía,  Litháen, Svartfjallaland, Slóvakíu og Bozníu – Herznegovínu. 

Markmið er að efla tækifæri barna með stuðningsþarfir í íþróttastarfi, að stuðla að vitundarvakningu og skapa vettvang þar sem öll börn njóta fjölbreyttra valkosta þegar kemur að vali á íþróttagrein.  Þetta verkefni er í raun framhald  YAP verkefnisins sem felur í sér hreyfiþjálfun leikskólabarna. Hér er horft á mikilvægi þess að öll börn njóti jákvæðrar upplifunar í fjölbreyttri flóru íþróttanna.

Ísland óskaði eftir að á að tengja verkefnið við grasrótarverkefni á Íslandi.  Samstarfsverkefni eru nú í gangi, annars vegar við körfuknattleiksdeild Hauka vegna Special Olympics hópsins og hins vegar var komið á nýju samstarfsverkefni í Reykjanesbæ. Þar var leitað til   Ungmennafélags Keflavíkur og UMNF sem brugðust vel við og hafa sett upp sameiginlegar æfingar í knattspyrnu og körfubolta fyrir börn með stuðningsþarfir í samráði við íþróttafélagið Nes.

Verkefni þjálfara á Íslandi hefur m.a. verið að meta efni fræðslubæklings fyrir  þjálfara – YA Devolopment Guide sem gefinn var út í tengslum við verkefnið og á að nýtast sem fræðsluefni fyrir þjálfara 

Ísland mun standa að þjálfararáðstefnu fyrir samstarfslöndin en megináhersla er að yfirfæra þekkingu og fræðslu milli samstarfslanda á hverju sviði. Ísland tekur einnig þátt í samstarfi vegna rannsóknarverkefnis sem stýrt er frá háskóla í  Poznan, Póllandi. 

Yfir 5 milljónir iðkenda eru skráðir hjá aðildarlöndum, alþjóðasamtaka Special Olympics. Samkvæmt upplýsingum WHO upplifa 200 milljónir einstaklinga með þroskahömlun, fordóma og útilokun. Þessi hópur mætir oft hindrunum þegar horft er á möguleika til menntunar,  atvinnu og læknisþjónustu. Á sama tíma og rannsóknir sýna þessa niðurstöðu sýna rannsóknir að þátttaka í íþróttastarfi hefur jákvæð áhrif á sjálfsmynd og félagsfærni og sjálfstæði í daglegu lífi.

Sækja skyldar greinar
  • Evrópumót Virtus

    Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…
  • Evrópuleikar ungmenna

    Evrópuleikar ungmenna – European Para Youth Games (EPYG) hafa verið haldnir frá árin…
  • Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

    Borðtennisfélag Reykjanesbæjar fékk nýveri ðafnot hluta af gömlu slökkvistöðinni í Reykjan…
Load More By merla
Load More In 1. tbl 2021
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Evrópumót Virtus

Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…