Í Covidinu verðum við að berjast fyrir réttindum barna með fötlun um allan heim
Undanfarin tíu ár hef ég unnið með fjölmörgum hjálparsamtökum víða í heiminum. Með þessu bréfi vil ég vekja athygli á Suður Afrískum samtökum sem heita Shonaquip Enterprise (SSE)
SSE samtökin framleiða hjólastóla fyrir dreifbýli Afríku. Markmið þeirra er að brjóta niður hindranir fyrir börn með fötlun sem búa í afskekktum og fátækum samfélögum. SSE nota hagnað sem myndast við sölu á hjólastólum ásamt fjáröflun til að veita börnum í neyð stuðning. Í því felst að þjálfa meðferðaraðila á afskekktum svæðum, útvega viðeigandi hjólastóla og sjá til þess að foreldrar, kennarar og samfélög skilji að börn með fötlun eigi rétt á að fara í skóla, leika sér og stunda íþróttir.
Myndbandið hér að neðan sýnir lítinn strák, Owen, sem er þakklátur fyrir hjólastólinn sem gerir honun kleift að snúa aftur í skólann. Móðir hans hefur beðið um að þessu myndbandi verði deilt ef það getur hjálpað öðrum börnum sem skortir stuðning. Í Suður-Afríku er fjöldi barna með fötlun sem geta ekki farið í skóla, oft vegna þess að þau skortir viðeigandi hjálpartæki. Brosið hanns Owens er smitandi og ég get ekki annað en brosað í hvert skipti sem ég sé það. Móðir Owens er hluti af foreldrahópi stofnað af SSE sem talar fyrir réttindum fatlaðra barna í Suður-Afríku.
COVID-19 faraldurinn þýðir að við verðum að leggja hart að okkur svo að börn eins og Owen gleymist ekki. Í löndum eins og Suður-Afríku er mjög takmarkað fjármagn veitt til almennra heilbrigðismála um þessar mundir vegna gífurlegs álags sem hefur fylgt COVID-19 farladrinum. Þetta þýðir að born með fötlun eiga hætt á að gleymast. Mér þykir afar vænt um samtök eins og SSE sem vinna hörðum höndum að því að tryggja að ekki dragi úr mikilvægum árangri sem við höfum náð í fötlunarhreyfingunni.
Til að læra meira um Shonaquip, fylgdu sögum þeirra á facbook eða hafðu samband við mig: erla.magnusdottir@gmail.com.
Greinahöfundur, Erla Magnúsdóttir var aðstoðarmaður ÍF á alþjóðaleikum Special Olympics í Shanghai 2007 og Ólympiuleikum fatlaðra í Kína 2008. Hún hefur starfað að mannúðarmálum um árabil og er nú að vinna með samtökum í S Afríku sem vinna að þvi að bæta aðstæður hreyfihamlaðra barna og meðal annars skapa þeim tækifæri til íþrótta.
Takk fyrir að lesa þetta bréf,
Erla Magnusdottir