Keila er skemmtileg fyrir alla óháð fötlun þó misjafn er hver geta hvers og eins sér. Iðkendur eru á misjöfnum forsendum í keilu, sumir eru fyrst og fremst fyrir skemmtilegan félagsskap á meðan aðrir eru miklir keppnismenn og í raun allt þar á milli.
Keiluæfingar Asparinnar fara fram í Keiluhöllinni Egilshöll á þriðjudögum og eru tveir æfingartímar, 16:50-17:50 og 17:50-18:50 á tímabilinu september – maí ár hvert.
Til viðbótar við æfingar þá er Öspin með þrjú keppnislið, eitt kvennalið, Öspin Gyðjur og tvö karlalið, Öspin Goðar og Öspin Ásar sem keppa í liðakeppni í deildarkeppni hjá Keilusambandi Íslands. Því til viðbótar hefur æfingarhópurinn farið tvisvar sinnum til Malmö og keppt á Malmö-Open (https://www.malmo-open.com/) sem er einstaklingskeppni.
Þjálfarar í keilunni hafa spilað og æft keilu til fjölda ára en þjálfarar eru Laufey Sigurðurdóttir yfirþjálfari, Sigurður Björn Bjarkason þjálfari og Bjarki Sigurðsson þjálfari, öll hafa þau lokið 1. stigi ETBF í keiluþjálfun auk þess sem Laufey hefur lokið 2. stigi í þjálfaramenntun ÍSÍ.
Netfang keiludeildarinnar er keiludeildin@gmail.com
Facebook-síða Aspar: https://www.facebook.com/ithrottafelagidosp