Heim 2. tbl 2019 Ísland sendir í fyrsta skipti fulltrúa á leiðtogaráðstefnu Special Olympics fyrir ungt fólk, Youth Summitt 2020

Ísland sendir í fyrsta skipti fulltrúa á leiðtogaráðstefnu Special Olympics fyrir ungt fólk, Youth Summitt 2020

4 min read
Slökkt á athugasemdum við Ísland sendir í fyrsta skipti fulltrúa á leiðtogaráðstefnu Special Olympics fyrir ungt fólk, Youth Summitt 2020
0
680

Youth Summitt er samstarfsvettvangur innan Special Olympics þar sem ungt fólk kemur saman og ræðir hagsmunamál og íþróttastarf. Ísland fékk boð frá Special Olympics í Evrópu um að taka þátt í Youth Summitt 2020 sem fram fer í Svíþjóð og það verða þeir Guðmundur Kristinn Jónasson og Ómar Karvel Guðmundsson frá Bolungarvík sem verða fullrúar Íslands á ráðstefnunni. Þeir kepptu í badminton „unified“ á alþjóðaleikum Special Olympics í Los Angeles 2015. Aðstoðarmaður þeirra verður Jónas Sigursteinsson

Jenni Hakkinend sem sér um unified-verkefni Special Olympics í Evrópu kom til Íslands nú í nóvember til að hitta þá félaga og halda kynningarfund um unified sport, unified school og Youth summitt. Ekki hefur verið fundið íslenskt orð yfir „unified“ sem byggir á t.d. liðakeppni fatlaðra og ófatlaðra í íþróttum. 

Kynningarfundurinn var haldinn í ÍSÍ mánudaginn 25. nóvember. Á fundinum voru auk fulltrúa ÍF og Special Olympics á Íslandi, iðkendur, þjálfarar  og sérgreinastjórar Special Olympics á Íslandi. Fulltrúar LETR á Íslandi stóðu með kyndil Special Olympics við útidyr ÍSÍ og tóku á móti fundargestum. Jenni var mjög ánægð með fundinn og þær umræður sem fóru þar fram og hrósaði liðsmönnum Special Olympics á Íslandi en þar standa margir vaktina og aðstoða skrifstofu ÍF við að fylgja verkefnum eftir. Það hefur vakið athygli hve margir þjálfarar innan ÍF og Special Olympics á Íslandi eru menntaðir íþróttafræðingar eða með mikla reynslu og fagkunnáttu á sviði þjálfunar en sú staða er alls ekki algeng hvað varðar iðkendur Special Olympics á heimsvísu. Þessi þáttur er gífurlega mikilvægur en það er einnig mikilvægt að fá liðsmenn til aðstoðar sem hafa sjálfir verið keppendur og á fundinum voru iðkendur sem jafnframt aðstoða við þjálfun hjá sínu félagi. 

Fulltrúi SOE heimsótti einnig HSK-mót í boccia sem haldið var á Selfossi. Það var íþróttanefnd fatlaðra hjá HSK sem skipulagði mótið þar sem fulltrúar Suðra og Gnýs kepptu í blönduðum liðum og mikil stemming ríkti á staðnum.

Sækja skyldar greinar
  • Evrópumót Virtus

    Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…
  • Evrópuleikar ungmenna

    Evrópuleikar ungmenna – European Para Youth Games (EPYG) hafa verið haldnir frá árin…
  • Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

    Borðtennisfélag Reykjanesbæjar fékk nýveri ðafnot hluta af gömlu slökkvistöðinni í Reykjan…
Load More By merla
Load More In 2. tbl 2019
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Evrópumót Virtus

Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…