Nú er staðfest hvaða keppendur fara á næstu heimsleika Special Olympics sem fara fram í Santiago, Chile 16. – 24. október 2027. Special Olympics á Íslandi fær kvóta í ákveðnum greinum og óskað er tilnefninga. Árangur er ekki mælikvarði við val á heimsleika Special Olympics og leikarnir byggja því á allt öðru keppnisformi en Paralympics eða Ólympíumóti fatlaðra. Skipt er í styrkleikaflokka og allir fá verðlaunapeninga eða verðlaunaborða.
Special Olympics á Íslandi setur fram ákveðin viðmið vegna tilnefninga:
- Hefur ekki tekið þátt í heimsleikum Special Olympics (m.t.t. árafjölda og kvóta)
- Hefur sýnt framfarir, mætt vel, sýnt áhuga á æfingum og er 15 ára eða eldri 16. október 2027.
- Hefur sýnt íþróttamannslega framkomu og verið til fyrirmyndar félagslega.
- Er talin nógu heilsuhraust/ur til að taka þátt í mjög krefjandi verkefni erlendis
- Er sjálfbjarga/ taka þarf tillit til þess að einn þjálfari hefur umsjón með fjórum keppendum
23 keppendur frá níu íþróttafélögum og þremur golfklúbbum taka þátt í 8 íþróttagreinum: Áhaldafimleikum, badminton, boccia, frjálsum íþróttum, golfi, lyftingum, nútímafimleikum og sundi. Keppendur koma frá Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Flúðum, Selfossi, Vestmannaeyjum, Stykkishólmi og Akureyri.
Eftirtalin íþróttafélög / klúbbar eiga fulltrúa á heimsleikum Special Olympics 2027
NES, Reykjanesbæ
- Jóel Máni Elorm Þórisson, badminton
- Lena Kristín Hermannsdóttir, boccia
Ármann, Reykjavík
- Sigríður Sigurjónsdóttir, lyftingar
- Anna Karen Jafetsdóttir, frjálsar íþróttir
- Kristján Jónsson, frjálsar íþróttir
Badmintonfélag Hafnarfjarðar
- Dalrós Líf Ólafsdóttir
Fjörður, Hafnarfirði
- Sigurður Reynir Ármannsson, lyftingar
- Elsa Sigvaldadóttir, frjálsar íþróttir
- Daníel Smári Hafþórsson, frjálsar íþróttir
- Kristrún Helga Þórðardóttir, sund
- Frosti Magnússon, sund
Ösp, Reykjavík
- Ýmir Snær Bang Hlynsson, sund
- Nína Margrét Ingimarsdóttir, nútímafimleikar
- María Gísladóttir, nútímafimleikar
Gerpla, Kópavogi
- Katrin Ling Yu Þórbergsdóttir, áhaldafimleikar
- Hilmir Sveinsson, áhaldafimleikar
- Viktor Skúli Þórarinsson, áhaldafimleikar
Óðinn Akureyri
- Kristín Erna Jakobsdóttir, sund
Suðri Selfossi / golfklúbburinn Flúðum
- Matthías Máni Elíasson, lyftingar
- Telma Þöll Þorbjörnsdóttir, golf
Golfklúbbur Akureyrar / EIK
- Elías Eyþór Þórarinsson, golf
Golfklúbburinn Mostri, Stykkishólmi
- Einar Marteinn Bergþórsson, golf
Ægir, Vestmannaeyjum
- Birgir Reimar Rafnsson, boccia

Upplýsingar um leikana
- 6.000 keppendur
- 170 þátttökulönd
- 2.000 þjálfarar/aðstoðarfólk
- Áætlað; 6.000 aðstandendur, 500.000 áhorfendur
- Opnunarhátíð 16. október; Julio Martinez Estadio Nacional
- Lokahátíð 24. október; Julio Martinez Estadio Nacional
- Keppnisstaður; Julio Martinez Estadio Nacional
- Áhaldafimleikar, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, lyftingar, nútímafimleikar, sund
- Keppnistaður; Prince Wales Country Club Campo de Golf:
- Golf, level 4 og 5
Annað;
Host Town program – 200 sveitarfélög taka þátt sem vinabæir þátttökulanda fyrir leikana
„Healthy Athletes“, Heilsufarsmælingar keppenda. Alþjóðlegt lið heilbrigðisstarfsfólks
LETR Enforcement Torch Run. Alþjóðlegt kyndilhlaup lögreglu
Motor Activity Training Program. Fyrir þá sem eru með mjög skerta hreyfifærni.
YAP – Young athlete program. Kynning á hreyfiþjálfun fyrir ung börn
Heimasíða leikanna 2027 Heimasíða SOI https://www.santiago2027.org/en https://www.specialolympics.org/
Magnús Orri Arnarson mun vinna heimildarmynd um undirbúning og þátttöku Íslands á leikunum 2027. Hann gerði heimildarmynd um heimsleika Special Olympics í vetraríþróttum sem fóru fram á Ítalíu 2025. Myndin var sýnd í bíó Paradís og á RUV undir heitinu „Sigur fyrir sjálfsmyndina“
Heimildarmyndin 2027 er kynnt undir sama heiti, „Sigur fyrir sjálfsmyndina“ hluti II.
