Heim Áfram veginn Hlaðvörp þriðja árs nema við HÍ

Hlaðvörp þriðja árs nema við HÍ

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Hlaðvörp þriðja árs nema við HÍ
1
867

Íþróttakennsla í margbreytilegum hópi og sérhæfð þjálfun
Hlaðvörp þriðja árs nema við HÍ

Íþróttasamband fatlaðra hefur um árabil átt öflugt og gott samstarf við skólasamfélagið. Í kynningarmánuði ÍF #AframVeginn hafa þriðja árs nemar við íþróttafræðideild Háskóla Íslands sett saman röð af hlaðvörpum um íþróttir fatlaðra, Paralympics, Special Olympics og sérstaka kynningu á Íþróttasambandi fatlaðra. 

Hlaðvörpin eru liður í námskeiðinu „Íþróttakennsla í margbreytilegum hópi og sérhæfð þjálfun.“ Nemar frá Háskóla Íslands og víðar hafa einnig í gegnum tíðina starfað við mótahald ÍF sem liður í námi sínu og þá hafa fjölmargir komið til þjálfunar og eða aðstoðar í fjölmörgum verkefnum sambandsins á innlendum og erlendum vettvangi.

Smelltu á útvarpið til að hlusta á hlaðvarpið

Í þessum fyrsta hlaðvarpsþætti sem ber nafnið „Íþróttir fatlaðra – kynning“ eru það Adam, Harpa og María sem standa að kynningunni. Vert er að taka fram að þetta eru fyrstu hlaðvarpsþættir sem gerðir hafa verið til kynningar á íþróttum fatlaðra og eru hluti af námi og því má gera ráð fyrir að í þessu frábæra framtaki gætu leynst stöku staðreyndarvillur en hér er vilji og hér er verk og það er allt sem þarf til að halda #ÁframVeginn

Íþróttafræði HÍ – hlaðvarp: Íþróttir fatlaðra – kynning

Sækja skyldar greinar
  • Evrópumót Virtus

    Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…
  • Evrópuleikar ungmenna

    Evrópuleikar ungmenna – European Para Youth Games (EPYG) hafa verið haldnir frá árin…
  • Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

    Borðtennisfélag Reykjanesbæjar fékk nýveri ðafnot hluta af gömlu slökkvistöðinni í Reykjan…
Load More By merla
Load More In Áfram veginn
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Evrópumót Virtus

Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…