Það var glæsilegt lið sem mætti til leiks á körfuboltamóti Hauka í Hafnarfirði í janúar 2020 þar sem Actavis mót Hauka fór fram. Þar var mætt nýjasta lið Hauka í Hafnarfirði, körfuboltalið Special Olympics. Æfingar hafa verið undir stjórn Kristins Jónassonar og Thelmu Þorbergsdóttur og þarna er á ferð sannkallaður ,,HAMINGJUHÓPUR“ eins og ein móðirin orðaði það. það er ómetanlegt þegar Íþróttasamband fatlaðra og Special Olympics á Íslandi nær að fá til liðs við starfið fólk sem er tilbúið að taka keflið og hefja vegferð nýrra tækifæra en án eldmóðs og krafts slíkra einstaklinga verða hugmyndir aðeins hugmyndir og ekkert nýtt skref stigið. Takk fyrir það Kristinn og Thelma og til hamingju Haukar með frábæra þjálfara og aðstoðarfólk þessa glæsilega liðs sem skipað er einstöku íþróttafólki.
Kristinn Jónasson þjálfari var spurður út í verkefnið og gefum Kristni orðið; „ Við spiluðum tvo leiki á Actavis móti Hauka og þeim fyrri mun ég sennilega aldrei gleyma! Flest börnin voru að taka þátt í sínu fyrsta körfuboltamóti og kom því hressilega á óvart hvað þau voru vel gíruð í þetta fra fyrstu sekúndu, alveg óhrædd og tilbúin í baráttuna. Það var líka ómetanlegt að sjá stuðninginn sem krakkarnir fengu frá áhorfendum. Það var sérstaklega flott að sjá hóp af 8 – 9 ára strákum úr Stjörnunni sem var að hvetja þá áfram með því að segja „Áfram Ísland“. Ég ætla að vona að þetta verði ekki síðasta skiptið sem þessir krakkar fá að heyra þau hvatningarorð en endanlegt markmið okkar þjálfaranna er á einhverjum tímapunkti að fara með hóp af börnum með sérþarfir á heimsleika Special Olympics sem fulltrúar íslensku þjóðarinnar!