Heim 2. tbl 2019 Bergrún og Már íþróttafólk ársins 2019
— Ásta Katrín hlaut Hvataverðlaunin

Bergrún og Már íþróttafólk ársins 2019
— Ásta Katrín hlaut Hvataverðlaunin

12 min read
Slökkt á athugasemdum við Bergrún og Már íþróttafólk ársins 2019
— Ásta Katrín hlaut Hvataverðlaunin
0
1,374

Jafnan er lokahnykkur hvers íþróttaárs hjá Íþróttasambandi fatlaðra kjörið á íþróttafólki ársins. Að þessu sinni voru það frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, ÍR, og sundmaðurinn Már Gunnarsson, ÍRB, sem valin voru íþróttamaður og íþróttakona ársins.

Venju samkvæmt fór athöfnin fram á Radisson Blu Hóteli Sögu en samstarf ÍF og hótelsins hefur staðið um árabil. Þá hlaut Ásta Katrín Helgadóttir Hvataverðlaunin en þau voru nú veitt í sjöunda sinn. Hvataverðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasamtökum, stofnun, fyrirtæki eða öðrum aðilum sem á framsækinn hátt hafa unnið í þágu íþróttastarfs fatlaðra á árinu.

Við þetta tækifæri var Ásta Katrín einnig sæmd gullmerki Íþróttasambands fatlaðra. Þá er gaman frá því að segja að á meðan athöfninni stóð þurfti Már Gunnarsson frá að hverfa í útvarpsviðtal þar sem hann hafði ásamt systur sinni haft sigur úr býtum í jólalagakeppni Rásar 2. Stór dagur í lífi Más Gunnarssonar svo sannarlega.

Sundmaðurinn Már Gunnarsson er íþróttamaður ársins 2019 hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Már á einkar glæsilegt íþróttaár að baki sem náði hámarki á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi sem fram fór í London. Þar varð Már einn Norðurlandabúa til þess að komast á verðlaunapall þegar hann setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 100m baksundi og vann til bronsverðlauna í greininni. Þjálfarar Más eru þeir Steindór Gunnarsson og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson.
Á árinu 2019 setti Már alls 28 Íslandsmet og synti þrívegis undir gildandi heimsmeti á ÍM25 í Ásvallalaug. Már stefnir ótrauður að þátttöku á Paralympics í Tokyo 2020 en takist það ætlunarverk hans verður það í fyrsta sinn sem hann keppir á leikunum. 

„Árið 2019 var afskaplega viðburðaríkt bæði í músíkinni og sundinu. Ég náði þeim markmiðum sem ég ætlaði að ná og það voru allskonar óvæntar uppákomur sem duttu inn í kjölfarið. Hjá mér er mikið svigrúm fyrir bætingar í sundlauginni og stefnan fyrir árið 2020 er klár og markmiðin enn skýrari,“ sagði Már Gunnarsson í samtali við Hvata. 

Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir er íþróttakona ársins 2019 hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Bergrún á glæsilegt keppnisár að baki þar sem heimsmeistaratitill hennar í langstökki ungmenna (U20) í Nottwil í Sviss ber hvað hæst. Þjálfari Bergrúnar hjá ÍR er Jón Oddsson.
Bergrún hafnaði í 5. sæti á heimsmeistaramóti IPC í langstökki þar sem hún náði sínu besta stökki á alþjóðlegu stórmóti er hún stökk 4,26 metra. Bergrún stefnir ótrauð að þátttöku á Paralympics í Tokyo 2020 en takist það ætlunarverk hennar verður það í fyrsta sinn sem hún keppir á leikunum. 

„Þetta er búið að vera frábært ár og ég er mjög ánægð með árangurinn á þessu ári og spennt fyrir árinu 2020. Stefnan er auðvitað sett á Paralympics í Tokyo svo það verður brjálað að gera á næstunni, botnlausar æfingar og gaman!“

Búið að vera frábært ár, mjög ánægð með árangurinn á árinu 2019 og spennt fyrir árinu 2020, stefnan sett á tokyo þannig það verður brjálað að gera á næstunni, botnlausar æfingar og gaman

Reglugerð um Hvataverðlaun ÍF 2019

Hvataverðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasamtökum, stofnun, fyrirtæki eða öðrum aðilum sem á framsækinn hátt hafa unnið í þágu íþróttastarfs fatlaðra á árinu

Hvataverðlaunin 2019 hlýtur Ásta Katrín Helgadóttir, íþróttakennari

Ásta Katrín Helgadóttir hefur í áratugi starfað með ÍF að fjölmörgum verkefnum en hún hlýtur Hvatabikarinn fyrir sérverkefni sem tengist leikskólastarfi og hreyfiþjálfun barna.

Árið 2015 hóf ÍF innleiðingu verkefnisins YAP eða Young Athlete Project sem er alþjóðlegt verkefni á vegum Special Olympics samtakanna. YAP hefur að markmiði að stuðla að snemmtækri íhlutun á sviði hreyfifærni, sérstaklega fyrir börn með sérþarfir eða frávik. Ísland hefur farið þá leið að leita samstarfs við leikskóla og heilsuleikskólinn Skógarás, Ásbrú hefur verið leiðandi samstarfsaðili frá upphafi. Í starfi sínu þar sem íþróttakennari hefur Ásta Katrín sýnt frumkvæði og leitt innleiðingarferlið með markvissri hreyfiþjálfun og rannsóknum á árangri. Hún hefur náð að tengja hugmyndafræði YAP við dagleg verkefni og nám í samstarfi við leikskólakennara og með virkum stuðningi leikskólastjórans, Þóru Sigrúnar Hjaltadóttur.

Ásta Katrín hefur aðstoðað framkvæmdastjóra Special Olympics á Íslandi við kynningarstarf á landsvísu, skipulagt verklega sýnikennslu á YAP kynningardögum og kynnt árangursríka aðferðafræði innleiðingar í heilsuleikskólanum Skógarási. Þar hafa öll börnin notið góðs af en sérstakur markhópur hefur verið börn með slaka hreyfifærni, hegðunarvandkvæði, hreyfivirkni eða ADHD og einnig nemendur sem eru t.d. óöruggir eða tvítyngdir. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á heilsuleikskólanum Skógarási hafa sýnt framfarir í hreyfifærni en einnig jákvæð áhrif YAP verkefnisins á félagsleg samskipti, vellíðan, sjálfsöryggi og gleði,  sjálfsstjórn og tjáningu. Rannsókn á viðhorfi foreldra leikskólabarna í Skógarási til YAP verkefnisins, sýndi fram á að foreldrar töldu sig meðvitaðri um að auka og fylgjast  með hreyfiþroska barnsins og þeir töldu að YAP verkefnið hafi haft jákvæð áhrif á hreyfiþroska, samskipti, félagsfærni og hegðun. Rannsókn sýndi einnig að kennarar leikskólans töldu YAP verkefnið hafa haft mjög jákvæð áhrif á hreyfiþroska og  félagsfærni og einnig jákvæð áhrif á samskipti og hegðun nemenda.  Markmið er að YAP verkefnið styrki börnin, geri þau hæfari til að stíga fyrstu skrefin í íþróttum og stuðli þannig að jákvæðri upplifun og þátttöku allra barna í íþróttastarfi. Þetta verkefni er því talið mjög mikilvægt til framtíðar fyrir starfsemi ÍF.

Íþróttasamband fatlaðra  þakkar Ástu Katrínu  sitt mikilvæga framlag.Hún er sannarlega vel að þessu komin. 

Sækja skyldar greinar
  • Evrópumót Virtus

    Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…
  • Evrópuleikar ungmenna

    Evrópuleikar ungmenna – European Para Youth Games (EPYG) hafa verið haldnir frá árin…
  • Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

    Borðtennisfélag Reykjanesbæjar fékk nýveri ðafnot hluta af gömlu slökkvistöðinni í Reykjan…
Load More By merla
Load More In 2. tbl 2019
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Evrópumót Virtus

Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…