Heim 1. tbl. 2026 Tæpir 500 dagar fram að heimsleikum Special Olympics í Chile 2027

Tæpir 500 dagar fram að heimsleikum Special Olympics í Chile 2027

3 min read
Slökkt á athugasemdum við Tæpir 500 dagar fram að heimsleikum Special Olympics í Chile 2027
0
14

Special Olympics International og aðildarlönd SOI fagna því að nú eru rétt um 500 dagar þar til heimsleikar Special Olympics hefjast í í Santiago, Chile.  2027.  23 keppendur munu mæta frá Íslandi til að taka þátt í 8 íþróttagreinum. 

Íslendingar munu keppa í áhaldafimleikum, boccia, badminton, frjálsum íþróttum, golfi, lyftingum, nútímafimleikum og sundi en hópurinn verður kynntur í næstu viku.  Special Olympics samtökin velja samstarfsaðila í hverju landi sem þurfa að fylgja ströngum stjórnsýslureglum og yfirleitt er starfið sjálfstæð eining. Á Íslandi var farin sú leið að tengja starfsemina við starf Íþróttasamband fatlaðra.  

Um 600 íslenskir keppendur víða af landinu hafa tekið þátt í heimsleikum Special Olympics, sumar og vetrarleikum en þeir hafa verið tilnefndir af aðildarfélögum ÍF.  Allir geta átt möguleika að vera tilnefndir ef þeir falla undir ákveðin viðmið m.a. mæta vel, leggja sig fram á æfingum og sýna jákvæða félagslega hegðun.  Viðmið þátttöku var áður „intellectual disability“ eða þroskahömlun en í í dag „learning disability“ sem hefur opnað dyr fyrir stóran iðkendahóp. Mikil áhersla er í dag á ,,unified“ þar sem ófatlaðir taka þátt í einstaklings og liðakeppni.  Magnús Orri Arnarson leita nú styrkja vegna heimildarmyndar um leikana ,,Sigur fyrir sjálfsmyndina“ hluti II.

Hann gerði heimildarmynd undir sama nafni um vetrarleika Special Olympics á Ítalíu 2025 sem sýnd var í bíó Paradís og á RUV.  

Samstarf við Magnús Orra hefur verið gríðarlega skemmtilegt og árarngursríkt en hann keppti sjálfur á heimsleikum Special Olympics í Abu Dhabi árið 2019. Saga hans hefur vakið mikla athygli hjá  SOI og SOEE en hún sýnir hvaða tækifæri geta opnast gegnum íþróttastarfið.

Fréttatilkynninguna má sjá hér.

Sækja skyldar greinar
Load More By Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Heimsleikar í Santiago, Chile 2027 16 .- 24.október 2027. Tilnefningar eru að berast

Tilnefningar vegna heimsleika Special Olympics í Chile 2027 eru að berast á skrifstofu ÍF …