Fimmtudaginn 4. júní var haldinn fyrsti formlegi fundur íþróttamannanefndar ÍF. Á fundinum voru nefndarmeðlimir kynntir til leiks og kosnir til hlutverka innan nefndarinnar.
Skipan nefndarinnar:
- Formaður: Arna Sigríður Albertsdóttir
- Varaformaður: Ingeborg Eide Garðarsdóttir
- Nefndarmeðlimir: Hákon Atli Bjarkason, Hulda Sigurjónsdóttir og Hilmar Snær Örvarsson
Markmið nefndarinnar er að efla samskipti og samráð og vera brú milli íþróttafólks og ÍF. Íþróttamannanefndin mun vinna að því að raddir íþróttafólks verði mótaðar, ræddar og miðlaðar til stjórnar og starfsfólks sambandsins, auk þess að tryggja að upplýsingar og ákvarðanir frá ÍF berist til íþróttafólks með skýrum og aðgengilegum hætti. Með þessu er stefnt að auknu trausti, bættri upplýsingagjöf og aukinni þátttöku íþróttafólks í þróun íþróttastarfsins.
Hafið samband við íþróttamannanefnd ÍF með tölvupósti: parasportisland@gmail.com.

