Heim 2. tbl 2020 Lítið gagn af hálfum hundi – biðin allt að 9 ár

Lítið gagn af hálfum hundi – biðin allt að 9 ár

7 min read
Slökkt á athugasemdum við Lítið gagn af hálfum hundi – biðin allt að 9 ár
0
832

Már Gunnarsson er ekki óvanur því að demba sér í djúpu laugina, bókstaflega sem og í yfirfærðri merkingu.
Már gagnrýndi á Fasbókarsíðu sinni þann seinagang og takmarkaðan stuðning við kaup á blindrahundum, fylgjendur Más tóku undir mál hans og í framhaldi hefur hann verið að fjalla um málið í hinum ýmsustu miðlum og er hvergi hættur. Við erum vön að sjá Má ná í mark og jafnvel slá met svo við efumst ekki að einhver hreyfing komist á málið á næstunni. Hundar eru sannarlega bestu vinir mannsins, og ekki hvað síst þeir sem eru þjálfaðir til að lána húsbændum sínum augu sín. Við fylgjumst spennt með þessu baráttumáli Más því hálfur hundur er bara ekki nóg.

Fasbókarfærsla Más

Þegar ég var 6 ára var mér kynnt fyrir hvítastafnum og notkun hans. Að nota svona prik er ekki bara að ganga um og dingla honum hingað og þangað heldur krefst notkun hans mikillar færni í daglegu umferli blinds einstaklings. Í gegnum stafinn skynja ég t.d kanta, tröppur, staura,alskonar undirlag og ekki síst gangandi fólk. Það skiptir miklu máli að fólk sem mætir mér úti á götu viti að ég sjái ekki, uppá mitt öyggi og ekki síður þeirra, þar er stafurinn lykilatriði. Því miður eru margir blindir einstaklingar sem skammast sín fyrir að nota staf og kjósa frekar að sleppa honum sem getur beinlínis verið lífshættulegt og aftrar þeim við að gera það sem annars væri vel mögulegt. Þegar ég var yngri kom það alveg fyrir að ég kaus að sleppa stafnum og ég má vera þakklátur fyrir að hafa enn fram-tennur mínar miðað við þá hluti sem ég hef gengið á og ekki slasað mig! Stafurinn er orðinn hluti af mér og ég fer ekki út úr húsi án þess að hafa hann með. Stafurinn er samt alls ekki töfralausn á öllu og tæki það allt of mikið pláss að fara yfir öll þau atriði í okkar umhverfi sem skapar vandræði eða hættu. Í stuttu máli rafmagnsbílar vegaframkvæmdir ,ónærgætið fólk og hlutir í höfuðhæð. Fyrir rúmu ári tók ég þá ákvörðun um að sækja um leiðsöguhund og með því færa mína hæfni, öryggi og sjálfstæði upp á hærra plan. Leiðsöguhundum er úthlutað einu sinni á ári af hinu opinbera og kostar hundurinn fullþjálfaður til landsins 4 til 6 milljónir. Aftur á móti hefur blindrafélagið þurft að fjármagna hundana og gefið ríkinu. Blindrafélagið hefur einungis fjármagn til að kaupa tvo hunda á ári og erum við 18 á biðlista! Blindrafélagið er að selja leiðsöguhunda-dagatalið til styrktar verkefninu og erum við svo þakklát fyrir hvert selt eintak! Sjá link hér fyrir neðan. En ef einhverjum dettur í hug sniðug leið til að setja hærra fjármagn í verkefnið til að grisja þennan 18 manna biðlista sem lengist á hverju ári Má endilega hafa beint samband við mig og ég kem hlutunum áleiðis, eða hafa samband við blindrafélagið. Sérfræðingar segja að blindur einstaklingur ásamt leiðsöguhundi staf og farsíma með leiðsögubúnaði séu allir vegir færir. ❤️Ath.hundurinn á myndinni er í þjálfun og fenginn að láni í þessari myndatöku!

Már í viðtali á Stöð 2 í gær

Smellið á myndina til að skoða viðtalið.

Leiðsöguhunda-dagatalið

Blindrafélagið selur leiðsöguhundadagatalið til að safna fyrir þjálfum leiðsöguhunda. Dagatalið kostar 1.939 krónur og það má panta með því að smella á myndina hér til hliðar.

Sækja skyldar greinar
  • Evrópumót Virtus

    Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…
  • Evrópuleikar ungmenna

    Evrópuleikar ungmenna – European Para Youth Games (EPYG) hafa verið haldnir frá árin…
  • Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

    Borðtennisfélag Reykjanesbæjar fékk nýveri ðafnot hluta af gömlu slökkvistöðinni í Reykjan…
Load More By merla
Load More In 2. tbl 2020
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Evrópumót Virtus

Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…