Heim 1. tbl 2022 Paralympic-dagurinn 2022: Mikilvægi hreyfingar

Paralympic-dagurinn 2022: Mikilvægi hreyfingar

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Paralympic-dagurinn 2022: Mikilvægi hreyfingar
0
763

Verið hjartanlega velkomin á Paralympic daginn 2022 haldinn á alþjóðadegi fatlaðra 3. desember.

Þá er loks komið að því eftir Covid viðburðatakmarkanir að við getum haldið Paralympic daginn. Dagurinn er nú sem hingað til helgaður kynningu á íþróttagreinum sem stundaðar eru innan vébanda Íþróttasambands fatlaðra. Íþróttanefndir ÍF, aðildarfélög ÍF og samstarfsaðilar sambandsins koma saman í frjálsíþróttahúsinu í Laugardal, sem tengt er Laugardalshöll, til að kynna íþróttagreinar og starfsemi íþróttafélaga fatlaðra. Samstarfsaðilar ÍF verða með kynningar og boðið er upp á veitingar í boði Toyota á Íslandi. Einnig verða drykkir í boði Coke á Íslandi.

Markmiðið með deginum er að auka þátttöku í íþróttum fatlaðra. Markhópurinn eru fatlaðir einstaklingar og eru fjölskyldur fatlaðra barna og ungmenna sérstaklega hvattar til að koma á staðinn til að kynna sér íþróttir sem í boði eru og átta sig á framboðinu, eða fjölbreytileikanum sem í boði er hér á landi.

Mikilvægi hreyfingar er mikil og ekki síst fyrir einstaklinga með fötlun sem geta með markvissri þátttöku í íþróttum aukið lífsgæði og getu til þátttöku í samfélaginu.

Verið öll velkomin á Paralympic-dag ÍF næstkomandi laugardag milli kl. 13 og 15 í frjálsíþróttahúsið tengt Laugardalshöll.

Með kveðju,
Þórður Árni Hjaltested, formaður ÍF

Paralympic-dagurinn – viðburður Facebook

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl 2022
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Afturelding af stað með verkefnið „Fótbolti fyrir alla“

Ungmennafélagið Afturelding hefur farið af stað með verkefnið „Fótbolti fyrir alla“ sem er…