„Mun halda áfram að bögga hann“
Thelma Dögg Grétarsdóttir, íþróttafulltrúi hjá Íþróttasambandi fatlaðra og ein allra besta blakkona landsins, tók í byrjun júní formlega við sem verkefnastjóri Allir með verkefnisins. Verkefnið hefur það að yfirlýstu markmiði að fjölga tækifærum fyrir börn með fatlanir og börn sem ekki hafa fundið sig í hefðbundnu íþróttastarfi.
Thelma tekur við starfinu af Valdimar Gunnarssyni, sem hefur undanfarin ár unnið magnað starf sem verkefnastjóri Allir með en fer nú senn á eftirlaun.
„Ég er rosalega spennt og mér finnst þetta mjög mikill heiður að fá að taka við þessu. Þetta er líka mjög mikil ábyrgð. Þannig að ég er stressuð af því að þetta er mikilvægt verkefni sem mig langar að gera vel en það er líka mjög spennandi.
Ég er búin að vera með svo gott fólk í kringum og búin að fá tækifæri til þess að læra mikið af Valda og mun alveg halda áfram að bögga hann. Ég á örugglega eftir að bóka rástíma með honum til þess að spyrja hann að hinu og þessu!“ segir Thelma í samtali við Hvata.

Öðruvísi að hafa hann ekki alla daga
Hún hefur undanfarna mánuði unnið náið með Valdimar og segir það hafa verið einkar ánægjulegt og lærdómsríkt.
„Ég er bara búin að upplifa Allir með verkefnið með honum þar sem við höfum verið tvö að kasta hugmyndum fram og til baka, þannig að það verður öðruvísi að hafa hann ekki alla daga.
En ég er búin að læra mikið og það er búin að vera rosalega mikil reynsla að fá að upplifa þetta með honum. Hann er búinn að fara í gegnum svo margt og byggja mikið frá grunni. Það er klárlega búið að styrkja mig mikið að fá að sjá hvernig hann er búinn að vinna í þessu og fá hans sýn á verkefnið.“
Thelma kemur því síður en svo að tómum kofanum og er vel í stakk búin til þess að taka við starfinu af Valdimar.
„Við erum alveg búin að ræða svolítið fram og til baka hvernig við sjáum fyrir okkur næstu þrjú árin. Þó að ég sé að taka við og hann að hætta höfum við einhvern veginn alltaf talað um það sem við þurfum að gera og ég er ekkert viss um að það breytist eitthvað í bráð.
Við erum búin að ræða þetta nokkuð vel og kasta fram hugmyndum. Svo er þetta líka bara að prófa og ræða við fólk. Tilgangurinn er að fá fleiri í lið með okkur,“ segir hún.

Margt spennandi fram undan
Spurð að því hver hennar fyrstu verkefni sem verkefnastjóri Allir með verða segir Thelma:
„Ég er með nokkrar hugmyndir. Mig langar að reyna að fara meira inn í skólana og inn í frístundaþjónusturnar, reyna að finna krakkana. Svo langar mig líka að kynnast betur verkefnunum sem hafa byrjað út frá Allir með.
Mig langar að hitta aðildarfélögin, hitta hefðbundin íþróttafélög og fara svolítið yfir sýnina sem ég er með næstu þrjú árin, svona fyrstu skrefin að henni. Hitta svæðisfulltrúana og fleiri sem geta komið að því að búa til ágætt teymi sem getur haldið utan um alla krakkana okkar.“
Nú þegar hún er tekin við er ekki úr vegi að spyrja hvort Thelma vilji sjá eitthvað breytast og hvort hún vilji ýta einhverju ákveðnu úr vör.
„Það eru spennandi hlutir framundan. Við teljum að það sé áhugaverður vinkill að við séum að horfa til fleiri tækifæra, eins og sérstaklega fyrir hreyfihamlaða og sérstaklega fyrir Special Olympics hópa. Svo langar okkur líka mjög mikið að athuga hvort við getum búið til tækifæri fyrir blinda.
Það er vinkill sem við þurfum að byrja að móta, hvernig er best að gera það. Við erum með spennandi hugmyndir sem verður áhugavert að fylgja eftir, hvort við náum að búa til fleiri tækifæri fyrir hópana,“ segir Thelma.

Rosalega ánægð með sveigjuna sem ég tók
Hún er með BS í iðjuþjálfunarfræði og meistaragráðu í íþróttavísindum með áherslu á íþróttasálfræði. Með það í huga þætti einhverjum rökrétt að leið Thelmu til ÍF hafi legið í gegnum iðjuþjálfunina. En var það svo?
„Nei, í rauninni ekki. Ég tók iðjuþjálfun í BS og fer úr því námi að vinna mjög mikið í álverum. Ég fer í sumarstarf hjá Norðurál sem sérfræðingur á öryggissviði og fyrir það var ég hjá Rio Tinto í sumarstarfi sem iðjuþjálfunarnemi þar sem ég var að uppfæra áhættugreiningar með tilliti til stoðkerfis. Út frá þeirri vinnu stofnaði ég nýsköpunarfyrirtæki, Calarmis, sem þróar tækni sem snýr að því fyrirbyggja titringsálag hjá starfsfólki sem vinnur með titrandi handverkfæri.
Svo fæ ég tækifæri í gegnum Blaksambandið að fara í meistaranám í íþróttavísindum, sem ég byrja svo í. Út frá því byrjaði ég svo hjá ÍF. Ég fæ SMS frá honum Inga Þór [Einarssyni] í HR klukkan sjö einn morguninn að þetta sé nú ekkert áríðandi en að ég ætti að heyra í honum sem fyrst.
Þá hugsa ég strax að ég sé einhvern veginn búin að falla í náminu en hann var bara að benda mér á að það væri verið að auglýsa eftir íþróttafulltrúa og að ég ætti að sækja um. Þá ákvað ég nú bara að sækja um og svo gekk þetta glimrandi vel og ég er rosalega ánægð með sveigjuna sem ég tók,“ útskýrir hún.

Mikilvægast að finna það sem krökkunum langar að gera
Thelma er sem áður segir ein af fremstu blakkonum landsins, fyrrum fyrirliði íslenska A-landsliðsins og lék um skeið sem atvinnumaður erlendis.
„Já ég er búin að vera svolítið í blakinu!“ segir hún og hlær þegar spyrill segir Thelmu vera hvað helst þekkta hér á landi sem geitin í blakinu. „Ég er heima að spila núna. Ég var erlendis að spila en er búin að vera heima núna í nokkur ár. Ég er búin að vera að spila og þjálfa unglingalandsliðin og gera allt sem viðkemur blaki,“ bætir hún við.
Allir með gengur út á það að börnum standi sem flestar íþróttir til boða. Thelma leggur áherslu á það en viðurkennir jafnframt fúslega að það heilli sig að koma blaki að.
„Það sem mér finnst mikilvægast í Allir með verkefninu er að við getum boðið krökkunum upp á það sem þeim langar að gera. Mig langar klárlega að blak sé þar inni. Ég tel að blak sé frábært tækifæri til þess að búa til samfélag, liðsíþrótt og fleira í þeim dúr.
Ég fékk mér allavega þjálfararéttindi í sitjandi blaki á síðasta ári þannig að það er vonandi hægt að nýta það. Ég er alveg með hugmyndir um það hvernig mig langar að koma blaki inn í íþróttahreyfinguna hjá okkur. En mikilvægast er að finna það sem krökkunum langar að gera,“ segir Thelma Dögg Grétarsdóttir að endingu í samtali við Hvata.
Viðtal/ Gunnar Egill Daníelsson
Myndir/ ÍF og úr einkasöfnum
