Heim 1. tbl 2022 Nýr samningur ÍF og KRAFT

Nýr samningur ÍF og KRAFT

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Nýr samningur ÍF og KRAFT
0
832

Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) og Kraftlyftingasamband Íslands (KRAFT) hafa gert með sér samstarfssamning. Gott samstarf hefur verið milli sambandanna um nokkurra ára skeið, en með samningnum er samstarfið formgert og er það von beggja að samningurinn muni auka enn á fagmennsku við æfingar, keppni og mótahald og um leið bæta aðstöðu fatlaðra til að iðka kraftlyftingar.

Kraftlyftingar er kjörin íþrótt fyrir alla, ekki síst íþróttamenn sem búa við fötlun. Þegar frá líður er vonin að fatlaðir kraftlyftingamenn og -konur geti tekið þátt á mótum KRAFT innanlands og IPC á alþjóðavettvangi til viðbótar við mót ÍF og KRAFT. Sett verður á laggirnar samstarfsnefnd sem skipuleggur framþróun samstarfs sambandanna framvegis.

Þeir sem vilja vita meira um málið geta leitað upplýsinga hjá ÍF og KRAFT.

Nýja samninginn undirrituðu þeir Jóhann Arnarson varaformaður ÍF og Hinrik Pálsson varaformaður KRAFT þegar Íslandsmót ÍF í lyftingum fór fram í CrossFit á Selfossi.

Mynd/ JBÓ

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl 2022
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Sonja og Sigrún með Íslandsmet á ÍM50

Íslands- og unglingameistaramót SSÍ og ÍF í 50m laug fór fram í Laugardalslaug dagana 12.-…