Heim 1. tbl. 2026 Svanur er öðlingur ársins: „Fannst notalegt að þeim skyldi detta þetta í hug“

Svanur er öðlingur ársins: „Fannst notalegt að þeim skyldi detta þetta í hug“

10 min read
Slökkt á athugasemdum við Svanur er öðlingur ársins: „Fannst notalegt að þeim skyldi detta þetta í hug“
0
205

Svanur Ingvarsson lamaðist fyrir neðan mitti í vinnuslysi aðeins 26 ára gamall. Á yngri árum hafði hann verið efnilegur sundmaður og lét áfallið ekki mikið á sig fá enda var Svanur byrjaður að keppa í sundi aðeins einu ári eftir slysið. Hann var á dögunum útnefndur öðlingur ársins 2025 af Héraðssambandinu Skarphéðni, HSK.

„Mér fannst það notalegt og þótti vænt um það. Það er kannski aðallega þannig sem ég myndi lýsa því. Mér fannst það notalegt að þeim skyldi láta sér detta þetta í hug,“ segir Svanur, sem er í dag 63 ára gamall, um útnefninguna.

Spurður hvers vegna hann hafi verið útnefndur öðlingur ársins segir Svanur:

„Það er fyrir áratuga félagsstarf, íþróttaiðkun og keppni á unglingsárum. Það var bæði frjálsar og sund, meiri keppni í sundi. Svo eftir að ég fatlaðist 26 ára tók íþróttaþráðurinn sig upp aftur. Ég keppti áfram í sundi og svo í sleðastjaki. Svo var þetta félagsstarf hjá fötluðum, íþróttasambandinu og Suðra.“

Virkur í félagsmálum og frumkvöðlastarfi

„Svanur hefur alla tíð verið mjög virkur í félagsmálunum og er enn að. Hann var lengi formaður sundnefndar HSK, næstum eitt ár framkvæmdastjóri HSK og framkvæmdastjóri Íþróttahátíðar HSK í Reykholti. Árum saman var hann þulur á nær öllum sundmótum sem haldin voru á HSK svæðinu og starfar enn á flestum frjálsíþróttamótum á Selfossi. Hann var um tíma í stjórn Sundsambands Íslands. Suðri Íþróttafélag fatlaðra á Suðurlandi hafði legið í láginni. Svanur hafði frumkvæði að því að koma starfinu af stað að nýju og var formaður þess í nokkur ár. Hann er og hefur verið frá upphafi Jólasveinanefnd Umf. Selfoss, eða í 49 ár.

Svanur hefur verið greinastjóri í sundi á Landsmóti UMFÍ, á 50+ mótum og mörgum Unglingalandsmótum á Selfossi, Þorlákshöfn, Hveragerði, Vík og tvisvar á Höfn. Þá hefur hann verið þulur í sundi á ULM á Egilsstöðum og að Laugum.

Svanur hefur lengi verið í Vetraríþróttanefnd ÍF og tekið þar þátt í frumkvöðlastarfi. Á þeim vettvangi hefur hann kennt á svigskíði og/eða verið þátttakandi á námskeiðum í Kerlingafjöllum, Skálafelli, Bláfjöllum, Hlíðarfjalli, Klettafjöllunum og í Noregi,“ segir meðal annars í ítarlegri samantekt í ársskýrslu HSK um ástæður þess að Svanur er öðlingur ársins 2025 hjá sambandinu.

Fyrsti Íslendingurinn á sumar og vetrar Paralympics

Svanur tók þátt í Paralympics er hann keppti í sundi í Barcelona árið 1992. Árið 1994 tók Svanur þátt í Vetrar Paralympics í sleðastjaki í Lillehammer og varð þannig fyrsti Íslendingurinn í sögunni til þess að taka þátt í bæði vetrar og sumar Paralympics.

„Það er nú bara gaman að því. Ég er ekki að tala um það í öðru hverju orði allavega en fyrst og fremst nærir það montið aðeins í manni. Mér finnst það bara gaman,“ segir Svanur, sem mælir með því að fólk prófi sem flestar íþróttir.

„Já, ég get nú alveg mælt með því. Þó að maður sé búinn að vera að keppa og leggja áherslu á sund þá er um að gera að prófa sem flest og hafa gaman. Þá tala ég nú ekki um útivistina, ég mæli nú mest með henni. Hreyfingu og útivist.“

Svanur var sæmdur fálkaorðunni árið 2024 fyrir framlag sitt í þágu íþróttastarfs fatlaðra. Hann hefur þá hlotið heiðursviðurkenningar fyrir störf sín og framlag til íþróttamála innan hreyfingarinnar, þar á meðal gullmerki ÍSÍ, gullmerki HSK, gullmerki ÍF, gullmerki Umf. Selfoss og starfsmerki UMFÍ.

Mikil vinna og dagleg heilsurækt

Svanur er fagstjóri verknáms og kennari í FSU og hefur sem fyrr í nógu að snúast.

„Í snjónum og klakanum og öllu því yfir veturinn getur maður lítið hreyft sig úti við svo sem en ég vinn fulla vinnu og töluvert meira en það. Þegar það næst fer ég labbandi á hjólastólnum í vinnuna til dæmis. Það er nú ekki nema tíu mínútna verk en það er samt betra en ekki.

Svoleiðis haga ég dögunum. Skrokkurinn er búinn að fá svolítið nóg af því að ég er að vinna of mikið miðað við hvað maður ætti að gera. Svoleiðis eru virku dagarnir, þeir fara mest í vinnu og svo þarf maður að rétta úr sér.

Ég reyni líka að nýta standbekkinn. Ég stend upp, reyni að gera það daglega í það minnsta. Ég er með standbekk heima hjá mér sem er þá í sjálfu sér sjúkraþjálfun eða hvað við köllum það. Þetta teygir á mjöðmum og það er náttúrlega gott að standa.

Þó maður sé kannski ekki að sprikla mikið er maður allavega aðeins að stunda þetta. Það er heilsurækt og endurhæfing í því, að standa upp. Ég veit ekki hvort við eigum að kalla þetta endurhæfingu eða sjúkraþjálfun en þá gerir maður daglega smávegis,“ segir öðlingurinn Svanur Ingvarsson um hvernig hann ver dögunum um þessar mundir.

Myndir/ Efri mynd – Anna Karólína/ Svanur á Vetrar Paralympics í Lillehammer.
Neðri mynd – HSK / Svanur tekur við viðurkenningunni sem öðlingur ársins.

Viðtal: Gunnar Egill Daníelsson

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Tækifæri í stað takmarkana hjá Gló Æfingastöð

Hjá Gló Æfingastöð á Háaleitisbraut fer fram fjölbreytt og mikilvægt starf með börnum, ung…