Heim 1. tbl 2020 Haukur og Michel slá ekki slöku við
 — Öflugir hlaupafélagar

Haukur og Michel slá ekki slöku við
 — Öflugir hlaupafélagar

3 min read
Slökkt á athugasemdum við Haukur og Michel slá ekki slöku við
 — Öflugir hlaupafélagar
1
1,513

Frjálsíþróttamennirnir Haukur Gunnarsson og Michel Masselter eru í hörku formi þessi dægrin og hafa verið duglegir að halda sér við þrátt fyrir takmarkanir vegna COVID19.

Á dögunum tóku þeir sig til og hlupu saman 10 kílómetra. Haukur er enn að æfa og er nú að æfa með frjálsíþróttadeild Ármanns en Michel æfir með Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík (ÍFR).

Báðir eru þeir Haukur og Michel í flokkum hreyfihamlaðra en í frjálsum í þróttum eru flokkar þeirra fyrir einstaklinga með CP og eru F/T 35-38. Algengustu hlaupavegalengdir í þeim flokki eru 100,200 og 400 metra hlaup. Þeir félagar tókust á við 10 kílómetrana og var ekki annað að sjá en að þessir öflugu kappar hafi klárað þetta verkefni með sóma eins og þeim einum er lagið.

Um aldarfjórðungur skilur að Hauk og Michel í aldri en þeir mættust þó á síðasta Íslandsmóti í Kaplakrika sem fram fór innanhúss. Haukur var hér á árum áður einn fremsti íþróttamaður þjóðarinnar í íþróttum fatlaðra og er m.a. marfaldur verðlaunahafi frá Evrópu, – heims, – og Ólympíumótum. Michel hefur lagt sinn íþróttagrunn í sundi en á síðustu árum hefur hann látið enn frekar að sér kveða í frjálsum.

Haukur komst vel að orði á Facebook-síðu sinni í gær þegar hann sagði um hlaupið: „Ég hef aldrei hlaupið með hreyfihömluðum einstaklingi þessa vegalengd. Við hlupum frá Nauthólsvík að Seltjarnarnesi og til baka. Þetta var magnað og einstakt.“

Hvati hitti þá félaga í Nauthólsvík þegar þeir voru að leggja upp í átökin

Sækja skyldar greinar
  • Evrópumót Virtus

    Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…
  • Evrópuleikar ungmenna

    Evrópuleikar ungmenna – European Para Youth Games (EPYG) hafa verið haldnir frá árin…
  • Ein af betri æfingaaðstöðum á landinu

    Borðtennisfélag Reykjanesbæjar fékk nýveri ðafnot hluta af gömlu slökkvistöðinni í Reykjan…
Load More By merla
Load More In 1. tbl 2020
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Evrópumót Virtus

Evrópumót Virtus (Alþjóðasamtök þroskahamlaðra íþróttamanna) fór fram í Kraká í Póllandi 1…