Glæsilegt Íslandsmót í boccia-einstaklingskeppni fór fram á Ísafirði helgina 4.-6. október 2020. Það var Harpa Bjornsdóttir, formaður aðildarfélags ÍF, Ívars á Ísafirði og nágrenni, sem leiddi undirbúning Íslandsmóts ÍF í samstarfi við boccianefnd ÍF.
Henni til halds og traust var reynslumikið fólk í mótsnefnd. Alls aðstoðuðu um 100 sjálfboðaliðar við undirbúning og framkvæmd mótsins. Keppni var sýnd beint á skjá í íþróttahúsinu og hægt var að fylgjast með á Netinu en það var Viðburðastofa Vestfjarða sem sá um að streyma. Mikill metnaður var lagður í verkefnið og bein lýsing var frá úrslitaleikjum mótsins. Vestfirðingar gera allt með stæl og höfðu ári áður pantað veislukokkinn Einsa kalda og félaga frá Eyjum í eldamennskuna á lokahófinu. Það mikla starf sem lá að baki skilaði glæsilegu Íslandsmóti. Til hamingju, Vestfirðingar.
Á lokahátíðinni afhenti formaður Ívars keflið til fulltrúa Suðra á Selfossi en þar verður mótið haustið 2020.
Á Íslandsmótum ÍF í boccia er keppt í deildum og getur fólk unnið sig upp eða fallið niður um deild. Þetta keppnisfyrirkomulag er sett upp á Íslandi þannig að allir keppi við alla óháð fötlun. Alþjóðareglur gilda í sjálfri keppninni en deildaumgjörðin er séríslensk. Auk deildakeppni er keppt í flokki BC1-5 sem er keppnisflokkur á mótum IPC og þar er alfarið keppt samkvæmt reglum IPC.
Guðrún Ólafsdóttir, Firði, sigraði í 1. deild og Ingi Björn Þorsteinsson, IFR, sigraði í flokki BC1-5.