Árlegt minningarmót Harðar Barðdal fór fram í Hraunkoti, á æfingasvæði golfklúbbsins Keilis mánudaginn 24. júní 2019. Fólk á öllum aldri mætti til leiks í blíðskaparveðri í Hafnarfirði.
Í flokki fatlaðra sigraði Sigurður Guðmundsson og í flokki ófatlaðra sigraði Hjördís Magnúsdóttir. Framfarabikar GSFÍ hlaut Eyrún Birta Þrastardóttir en Ólafur Ragnarsson tók við bikarnum þar sem hún var ekki á staðnum.
Í 2. sæti í flokki fatlaðra var Kristbergur Jónsson og 3. sæti Elín Fanney Ólafsdóttir. Í flokki ófatlaðra var í 2. sæti Brynja Valdimarsdóttir (Frans Sigurðsson tók á móti hennar verðlaunum) og 3. sæti Kristmann Magnússon.
ÍF þakkar GSFÍ og sérstaklega Ólafi Ragnarssyni og Frans Sigurðssyni fyrir skipulag mótsins. Þjálfari GSFÍ-hópsins, Karl Ómar Karlsson, hefur náð góðum árangri og starfið blómstrar. Golfklúbburinn Keilir fær þakkir fyrir frábært samstarf og stuðning við golfstarf GSFÍ.