Leikarnir sem fara áttu upphaflega fram í Svíþjóð árið 2021 munu fara fram í Kazan, Rússlandi 22. – 28. Janúar 2022. Svíar höfðu lagt mikinn undirbúning í verkefnið en urðu því miður að hætta við framkvæmd.
Helsta ástæða var forsendubrestur en ekki tókst að tryggja fjárhagslegan stuðning við verkefnið. Sú ákvörðun Svia að hætta við framkvæmd skapaði miklu óvissu um hvort af leikunum yrði og erfitt var að fá annan framkvæmdaraðila með svo stuttum fyrirvara. Fyrir Norðurlöndin hafði það mikla þýðingu að hafa leikana í Svíþjóð og Special Olympics í Svíþjóð hafði lagt mikla áherslu á að nýta leikana til að efla starfið og vinna sérstakt markaðsátak til að kynna starfsemi Special Olympics á landsvísu.
Sú vinna hélt áfram þegar ljóst var að leikarnir yrðu ekki í Svíþjóð og þrátt fyrir að hætt hefði verið við framkvæmd hafði undirbúningsvinna skilað góðri kynningu sem nýttist áfram. Eftir mikla vinnu tókst að fá framkvæmdaraðila að leikunum sem munu fara fram í Kazan í Rússlandi 2022.