Hið árlega minningarpúttmót Harðar Barðdal var haldið í Hraunkoti í Hafnarfirði mánudaginn 20. júní í frábæru veðri. Veitt voru verðlaun í tveimur flokkum fatlaðra.
Í flokki tvö var það Vilhelm Sigurjónsson sem var í fyrsta sæti, Gauti Árnason í öðru og Jón Gunnarsson í þriðja. Í flokki eitt var það Sigurður Guðmundsson sem vann, Elín Fanney Ólafsdóttir í öðru og Ásmundur Þór Ásmundsson í þriðja.
Sigurður Guðmundsson hlaut svo hvatningarbikar GSFÍ fyrir góða ástundun.