Heim 1. tbl. 2026 Arna fimmti Íslendingurinn á Vetrar Paralympics

Arna fimmti Íslendingurinn á Vetrar Paralympics

4 min read
Slökkt á athugasemdum við Arna fimmti Íslendingurinn á Vetrar Paralympics
1
566

Vetrar Paralympics verða settir í Milano Cortina þann 6. mars næstkomandi og standa til 15. mars. Fulltrúi Íslands við leikana er Arna Sigríður Albertsdóttir frá Skíðafélagi Ísfirðinga. Arna verður fimmti Íslendingurinn í sögunni til þess að keppa fyrir Íslands hönd á Vetrar Paralympics.

Árið 1994 var það Svanur Ingvarsson frá Suðra sem reið á vaðið í Lillehammer í Noregi þegar hann keppti fyrir Ísland í svokölluðu sleðastjaki. Erna Friðriksdóttir frá Örvari/ÚÍA var svo næst árið 2010 þegar hún keppti í alpagreinum á leikunum í Vancouver. Þar með varð Erna fyrst íslenskra kvenna á Vetrar Paralympics og til dagsins í dag sú eina uns Arna tryggði sér þátttökurétt.

Árið 2014 var Erna aftur á ferðinni í Sochi í alpagreinum og með henni Jóhann Þór Hólmgrímsson frá Akri á Akureyri en bæði kepptu þau í sitjandi flokki í alpagreinum og Jóhann því fyrstur karla til að keppa í alpagreinum fyrir Íslands hönd. Urðu 2014 leikarnir síðustu leikar þeirra Ernu og Jóhanns en Hilmar Snær Örvarsson frá skíðadeild Víkings tók við keflvinu árið 2018 þegar hann keppti í alpagreinum í Peyong Chang í Suður-Kóreu. Hilmar fór svo á sína aðra leika árið 2022 í Peking sem gera hann og Ernu að einu Íslendingunum sem hafa tvívegis tekið þátt í Vetrar Paralympics.

Og núna með þátttöku Örnu Sigríðar verður hún fyrst kvenna á Íslandi til að keppa í skíðagöngu og fyrst kvenna til að keppa fyrir Íslands á Sumar- og vetrarleikum Paralympics þar sem hún keppti í handahjólreiðum í Tokyo 2020 (2021). Fyrstur karla til þess að vinna þetta afrek var Svanur Ingvarsson sem keppti 1994 á Vetrar Paralympics og svo 1992 á Sumar leikunum í Barcelona.

Þátttaka Íslands hófst því á vetrar Paralympics 1994 en síðan áttum við ekki keppanda fyrr en 2010 en eftir þá leika hefur Íslandi tekist að tryggja fulltrúa á leikana frá 2010 til dagsins í dag eða fimm leika í röð.

Um þessar mundir er Arna við æfingar í Noregi og fer beint þaðan til Ítalíu en keppnisdagar hennar eru 10. og 11. mars næstkomandi þar sem hún keppir í sprettgögnu og 10km göngu.

Hér má svo sjá lista yfir alla keppendur Íslands á Sumar og Vetrar Paralympics frá upphafi.

#TeamIceland

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Thelma Dögg tekur við Allir með verkefninu af Valdimari

„Mun halda áfram að bögga hann“ Thelma Dögg Grétarsdóttir, íþróttafulltrúi hjá Íþróttasamb…