Nordic Swimming Championships fer fram í Vasby í Svíþjóð dagana 3.-5. desember næstkomandi. Fimm afrekssundmenn úr röðum fatlaðra hafa verið valdir til þátttöku fyrir Íslands hönd en þau eru:
- Þórey Ísafold Magnúsdóttir – KR – S14
- Guðfinnur Karlsson – Fjörður – S11
- Sonja Sigurðardóttir – ÍFR – S4
- Thelma Björg Björnsdóttir – ÍFR – S6
- Hjörtur Már Ingvarsson – Fjörður – S5
NM 2021 er sameiginlegt mótahald fatlaðra og ófatlaðra rétt eins og Íslandsmót SSÍ og ÍF í 25m laug síðustu helgi. Hópurinn heldur út til Svíþjóðar þann 1. desember næstkomandi og er væntanlegur aftur heim 6. desember. Þjálfarar í ferðinni eru Ragnar Friðbjarnarson og Ragnheiður Runólfsdóttir.