Þúsundir sjálfboðaliða víða að úr heiminum gegna mismunandi hlutverki á heimsleikunum í Berlin. Ungir sem gamlir standa langar vaktir í fjólubláum bolum tilbúnir til aðstoðar. Hver hefur sína sögu að segja, margir með langa reynslu að baki í sjálfboðastarfi og aðrir að leggja af stað í þá vegferð. Án þessa hóps væri ekki hægt að skipuleggja viðburð sem þennan og sama gildir um lítil innanfélagsmót á Íslandi.
TAKK SJÁLFBOÐALIÐAR