Heim 1. tbl. 2026 Heimsleikar í Santiago, Chile 2027 16 .- 24.október 2027. Tilnefningar eru að berast

Heimsleikar í Santiago, Chile 2027 16 .- 24.október 2027. Tilnefningar eru að berast

4 min read
Slökkt á athugasemdum við Heimsleikar í Santiago, Chile 2027 16 .- 24.október 2027. Tilnefningar eru að berast
1
329

Tilnefningar vegna heimsleika Special Olympics í Chile 2027 eru að berast á skrifstofu ÍF

Bréf var sent aðildarfélögum ÍF og til svæðisstjóra ÍSÍ og UMFÍ en allir geta tilnefnt, séu aðilar að æfa og falla undir skilgreiningu Special Olympics.

Áður var skilgreining intellectual disability eða þroskahömlun en er í dag learning disability. Viðmið er því mun hærra en áður var og opnar dyr fyrir stærri hóp.

Tilnefningar taka mið af eftirfarandi;

  • Hefur ekki tekið þátt í heimsleikum Special Olympics
  • Hefur sýnt framfarir, mætt vel, sýnt áhuga á æfingum og er 15 ára eða eldri 24. okt 2027.
  • Hefur sýnt íþróttamannslega framkomu og verið til fyrirmyndar félagslega.
  • Er talin nógu heilsuhraust/ur til að taka þátt í mjög krefjandi verkefni erlendis
  • Er sjálfbjarga/ taka þarf tillit til þess að skv. kvóta hefur 1 þjálfari umsjón með 4 keppendum

Ísland sendir keppendur í  níu greinum;  Áhalda og nútímafimleikum, badminton, boccia, borðtennis, frjalsum íþróttum, golfi, lyftingum og sundi.

Yfir 600 Íslendingar hafa tekið þátt í heimsleikum Special Olympics þar sem horft er til styrkleika hvers og eins og allir fá að blómstra.

Myndir frá heimsleikum Special Olympics í Berlín 2023

Nánari upplýsingar

Heimsleikar Special Olympics, Santiago, Chile 16. – 24. október 2027

22 íþróttagreinar, – 

14 „unified“ greinar – (lið byggð á samstarfi fatlaðra og ófatlaðra)

6.000 keppendur 

170 þátttökulönd

2.000 þjálfarar/aðstoðarfólk

Áætlað; 6.000 aðstandendur, 500.000 áhorfendur

Opnunarhátíð 16. október; Julio Martinez Estadio Nacional 

Lokahátíð 24. október; Julio Martinez Estadio Nacional

Keppnisstaður;                             Julio Martinez Estadio Nacional

Áhaldafimleikar, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, lyftingar, nútímafimleikar, sund

Keppnistaður;                 Centro de Entrenamiento Olimpico;  

Borðtennis, körfubolti

Keppnistaður; Prince Wales Country Club Campo de Golf:     

Golf 

Annað; 

Host Town program – 200 sveitarfélög taka þátt sem vinabæir

„Healthy Athletes“,  Heilsufarsmælingar keppenda

LETR Enforcement Torch Run, alþjóðlegt kyndilhlaup lögreglu

Motor Activity Training Program.  Sérverkefni fyrir þá sem eru með mjög skerta hreyfifærni.

YAP – Young athlete program. Kynning á verkefni fyrir ung börn

Upplýsingar; Santiago2027.org  @SpecialOlympics #SpecialOlympics # Santiago

Sækja skyldar greinar
Load More By Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Tæpir 500 dagar fram að heimsleikum Special Olympics í Chile 2027

Special Olympics International og aðildarlönd SOI fagna því að nú eru rétt um 500 dagar þa…