Evrópuleikar ungmenna verða haldnir í Finnlandi dagana 27. júní – 4. júlí 2022. Verkefnið er á vegum Evrópuhluta IPC en sá Evrópuhluti heitir EPC (European Paralympic Committee). Um er að ræða keppni fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk 23 ára og yngri (aldursmörk eru mismunandi eftir greinum).
Tilnefningar vegna verkefnisins hafa þegar verið sendar til aðildarfélaga Íþróttasambands fatlaðra. Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á heimasíðu mótsins hér eða með því að hafa samband við skrifstofu Íþróttasambands fatlaðra á if@ifsport.is