Heim 2. tbl 2021 Bergrún, Már og Róbert íþróttafólk ársins

Bergrún, Már og Róbert íþróttafólk ársins

6 min read
Slökkt á athugasemdum við Bergrún, Már og Róbert íþróttafólk ársins
0
1,602

Kjöri Íþróttafólks ársins 2021 hjá Íþróttasambandi fatlaðra var lýst á Grand Hótel í Reykjavík í dag. Í fyrsta sinn voru tveir karlmenn um hituna þegar báðir þeir Már Gunnarsson og Róbert Ísak Jónsson voru valdir íþróttamenn ársins. Þá var Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir útnefnd íþróttakona ársins og er þetta fjórða árið í röð sem hún hlýtur nafnbótina. 

Fráfarandi yfirmenn landsliðsmála ÍF þeir Ingi Þór Einarsson og Kári Jónsson hlutu svo Hvataverðlaun Íþróttasambands fatlaðra við athöfnina.  

Í fyrsta sinn í sögu Íþróttasambands fatlaðra eru tveir íþróttamenn sem báðir hljóta nafnbótina íþróttamaður ársins.Íþróttamenn ársins eru sundmennirnir Már Gunnarsson, ÍRB og Róbert Ísak Jónsson, SH. Magnað afreksár er að baki hjá báðum íþróttamönnum og eftir mikla umhugsun ákvað stjórn ÍF að ekki væri hægt að gera upp á milli þessara tveggja öflugu sundmanna.

Már og Róbert háðu harða baráttu um nafnbótina en báðir settu þeir fjölda Íslandsmeta á árinu 2021. Már alls 13 og Róbert alls 12.  

Á Evrópumeistaramótinu í 50m laug í Portúgal vann Róbert Ísak brons í 200m fjórsundi og silfur í 100m flugsundi. Már setti nýtt heimsmet í 200m baksundi á Íslandsmótinu í aprílmánuði.  

Báðir voru þeir Róbert og Már glæsilegir fulltrúar Íslands á Paralympics í Tokyo þar sem Már keppti í fjórum greinum og náði bestum árangri með 5. sæti í 100m baksundi. Róbert Ísak keppti í þremur greinum og náði í tvígang í 6. sæti í 200m fjórsundi og 100m flugsundi.  

Þetta er í annað sinn sem þeir Már og Róbert hljóta nafnbótina en Már var fyrst valinn íþróttamaður ársins árið 2019 og Róbert Ísak árið 2017. 

ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2021

Nafn: Már Gunnarsson                                   
Aldur: 22 ára                                                 
Félag: ÍRB                                                     
Íþrótt: Sund                                                 
Keppnisflokkur: S11 (blindir)                           
Þjálfari: Steindór Gunnarsson     

ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2021

Nafn: Róbert Ísak JónssonAldur: 20 ára
Félag: Fjörður/ SH
 Íþrótt: Sund
Keppnisflokkur: S14 (þroskahamlaðir)
 Þjálfari: Mladen Tepavcevic 

Íþróttakona ársins 2021 er frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, FH. Þetta er fjórða árið í röð sem Bergrún hlýtur nafnbótina en þar með varð hún aðeins önnur íslenskra kvenna til þess að verða valin fjögur ár í röð. Fyrir var það aðeins Kristín Rós Hákonardóttir sundkona sem hafði hlotið útnefninguna fjórum sinnum í röð eða oftar. 

Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir hefur síðustu tvö tímabil keppt fyrir FH en nú í lok árs 2021 hefur hún ákveðið að skipta á nýjan leik til ÍR. Bergrún setti tvö ný Íslandsmet í kúluvarpi á árinu og keppti í fyrsta sinn á Paralympics. 

Bergrún vann til silfurverðlauna á EM í Póllandi í kúluvarpi þegar hún varpaði kúlunni 8.76 metra og skömmu síðar stórbætti hún Íslandsmetið og það á Paralympics í Tokyo þegar hún hafnaði í 7. sæti eftir að hafa varpað kúlunni 9,57 metra.

ÍÞRÓTTAKONA ÁRSINS 2021

Nafn: Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir
Aldur: 21 árs
Félag: FH
Íþrótt: Frjálsar
Keppnisflokkur: T/F 37 (flokkur hreyfihamlaðra)
Þjálfari: Hermann Þór Haraldsson

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 2. tbl 2021
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Sonja og Sigrún með Íslandsmet á ÍM50

Íslands- og unglingameistaramót SSÍ og ÍF í 50m laug fór fram í Laugardalslaug dagana 12.-…