Heim 1. tbl. 2025 Unified Schools Í Húsaskóla — Uppgjör

Unified Schools Í Húsaskóla — Uppgjör

16 min read
Slökkt á athugasemdum við Unified Schools Í Húsaskóla — Uppgjör
0
159

Helga Olsen kennari og skautaþjálfari hefur undanfarna mánuði haft umsjón með samstarfsverkefni Húsaskóla og Special Olympics á Íslandi sem ber heitið „unified School“  Óskað var eftir upplýsingum um verkefnið en mikið var lagt í framkvæmd og virka þátttöku nemenda. Allir þeir sem komu að verkefninu fá innilegar þakkir fyrir frábært samstarf.   Hér er greinin frá Helgu Olsen.

Þegar skólastarfinu lýkur fer hugurinn oft yfir það sem á daga okkar hefur drifið. Hvaða verkefni gengu vel, hvar við viljum gera betur og hvað stóð upp úr á skólaárinu.

Í vetur byrjuðum við í Húsaskóla með Skólaverkefni Special Olympics, Special Olympics Unifed School. Markmiðið með verkefninu var að auka innsýn nemenda í inngildingu í samfélaginu okkar og hvað við getum gert saman. Íþróttir eru svo gríðarlega stór hluti af samfélagi okkar hér á Íslandi og ég held að við séum nú langflest ef ekki öll sammála um að hreyfing sé okkur gagnleg. Því var svo kjörið að taka þátt í verkefni sem nemendur okkar tengdu strax við, hver með sína reynslu af íþróttastarfi. Special Olympics Unified School er verkefni sem hefur það að leiðarljósi að auka inngildingu fatlaðra í samfélaginu í gegnum íþróttir. Íþróttir eru svo gríðarlega mikilvægar og þátttaka mikil og með því að allir taki saman þátt í íþróttum lærum við kannski að við getum líka öll verið saman í samfélaginu.

Við byrjuðum verkefnið á að hitta nemendur og fara aðeins yfir hvað hugtakið fötlun þýðir fyrir þeim, hvort hún sé alltaf sýnileg og hvernig við getum komið fram til þess að auka inngildingu þeirra sem einhverra hluta vegna eiga kannski erfitt með að taka þátt í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur. Þetta var mjög gagnleg umræða og nemendur voru mjög virkir í að koma með athugasemdir, fyrirspurnir svo ekki sé talað um allar reynslusögurnar. 

Við lögðum af stað í þetta verkefnið með eftirfarandi markmið – verkefnið átti að skila:

  • Að nemendur okkar þekki til Special Olympics hreyfingarinnar og fyrir hvað hún stendur.
  • koma í veg fyrir fordóma í garð fólks með hvers kyns fötlun með aukinni fræðslu.
  • Að auka skilning nemenda á margbreytileika samfélagsins.
  • Að nemendur átti sig á mikilvægi íþrótta og hreyfingar í daglegu lífi fatlaðra sem og ófatlaðra.
  • Að nemendur geti sett sig í spor annarra, geti verið þeim hvatning og stuðningur.
  • Að nemendur fræðist um móttökuland og umgjörð leikanna.

Við fórum vel yfir muninn á Special Olympics annars vegar og Paralympics hins vegar. Hér er um gríðarlega mikinn mun að ræða en þrátt fyrir það hefur þessu því miður oft verið ruglað saman að einhverju leiti. Við ræddum sérstaklega sérstöðu Special Olympics þar sem megináherslan er á það að taka þátt sé aðalatriðið þar sem lagt er upp með að hver og einn hafi tækifæri til þátttöku í jafningjahópi. Við fórum einnig vel yfir hugmyndafræði Special Olympics hreyfingarinnar og gildi umburðarlyndis og jafnræðis, einstaklingsmiðaða færni og vináttu. Þegar hér er komið í verkefninu erum við komin með virkilega flottann grunn að hugtökum sem vert er að staldra við og rýna í. Hvaða þýða þessi hugtök í rauninni og hvaða þýðingu hafa þessi hugtök fyrir okkur sjálf. Eru þau mikilvæg og þá fyrir hvern? Bara suma eða alla?

Nemendur eru svo frjóir og það er svo spennandi sem kennari að fá að fylgjast með umræðum barna, en það er einnig svo mikilvægt að gefa þeim færi á að tjá skoðanir sínar og ræða saman um mál sem hafa raunverulega þýðingu.

Við kynntum fyrir þeim fyrirkomulag Heimsleika Special Olympics og þær íþróttagreinar sem keppt er í á hverjum leikum. Hvernig Ísland velur keppendur til þátttöku hverju sinni og í hvaða greinum við höfum tekið þátt. Við fórum yfir sumarleika og vetrarleika en verkefnið í heild, byggði einmitt á Vetrarleikum Special Olympics 2025 sem fram fóru í Turin, Ítalíu, í mars síðastliðnum. Við kynntum fyrir þeim fyrirhugaða dagskrá leikanna 2025 og einna helst þá keppendur sem stefndu nú á leikana en í fyrsta sinn sendi Ísland keppendur í þrjár greinar á Vetrarleika Special Olympics. 

Næsti hluti verkefnisins var að fara upp í Egilshöll og fá kynningu á þeim greinum sem hægt var að fá sýningu á þar. Dansparið okkar kom og sýndi atriðið sitt og skautararnir sýndu keppnisprógrömmin sín á ísnum. Auk þess kynntum við skauta- stuðningsgrindur sem skólaverkefnið hafði fest kaup á en önnur grindin var síðar færð Skautahöllinni á Akureyri til notkunar en hin er í Egilshöll. Skautagrindunum er ætlað að gefa fleiri börnum kost á að taka þátt á skautum með sínum félögum, að sem flestir geti tekið þátt t.d. á bekkjarkvöldi, afmælum eða jafnvel bara að eiga ánægjulega stund með jafningjum í skautahöllunum. 

Nemendur fengu svo að fara á ísinn þar sem skautaþjálfarar kynntu þær æfingar sem þarf til fyrir fyrsta levelið í keppni hjá Special Olympics. Skautagrindurnar sönnuðu gildi sitt strax þar, því í hópnum voru einmitt nemendur sem þurftu á þeim að halda.

Frekari vinna átti þó eftir að fara fram í skólastofunni sjálfri því nemendur var nú skipt upp í hópa og unnu mjög fjölbreytt og gefandi verkefni.

Næsti hluti verkefnisins:

  • Kynna sér keppendur:
    • velja keppanda til þess að styðja með bréfaskriftum, hvatningarorðum, myndband o.fl.
  • Kynna sér Ítalíu og ferðatilhögun hópsins til Turin.
  • Skipuleggja ferð – Hvað þarf að taka með í svona ferð hvað þarft að hafa í huga þegar ferðast er í svona ferð?
  • Vinna með íþróttagrein:
    • Hver hópur valdi sér vetraríþróttagrein til þess að kynna sér betur.
    • Útbúnað sem til þarf við ástundun.
    • Keppnisstaður – hvar fer keppni fram og hvers má vænta af staðnum s.s. hvar í Ítalíu, fjöldi íbúa, sérkenni, ferðir til og frá Turin, hvaða greinar fara þar fram?
    • Fjöldi keppenda, þjálfara o.fl. – hvaða Íslendingur verður þar?
  • Farið yfir styrk 66° Norður og hvers virði styrkurinn var á hvern einstakling – listi yfir fatnað landsliðs fylgdi og þurftu nemendur að kynna sér verðgildi styrksins.

Afraksturinn lét ekki á sér standa því allir okkar keppendur fengu yndislegar kveðjur og falleg hvatningarorð frá nemendum okkar í Húsaskóla. Lukkugripir og falleg bréf sem nemendur höfðu útbúið voru afhent keppendum þegar komið var til Ítalíu og er óhætt að segja að það hafi strax skapað þvílíka lukku og gleði meðal keppenda. Nemendur héldu svo áfram að senda keppendum hvatningarorð á meðan á leikunum stóð og fréttir af gengi og upplifun keppenda var að sama skapi komið til kennara skólans. 

Samviskusamlega helltu nemendur sér í rannsóknarvinnu um Ítalíu, Special Olympics, keppendur okkar, íþróttagreinar og í raun allt sem fyrir þau var lagt. Þau kynntu afraksturinn fyrir samnemendum sínum og fræddu jafnaldra sína um leið á viðfangsefni sínu og fræddust svo um það sem aðrir nemendahópar kynntu þeim. 

Að lokum var haldin uppskeruhátíð eða pizzapartý þar sem fulltrúar keppenda, Bjarki Rúnar Steinarsson og Védís Harðardóttir afhentu nemendum viðurkenningu fyrir þátttöku í verkefninu að fulltrúa Special Olympics, Karen Ástu Friðjónsdóttur, viðstaddri.

Aðstandendur keppenda vildu koma á framfæri sérstöku þakklæti til nemenda Húsaskóla og fannst stuðningurinn sem þeir fundu fyrir mjög mikilvægur.

„Mér finnst þetta verkefni alveg frábært. Það stuðlar að skilningi, virðingu og samkennd með fötluðum og greinilega náði vel til nemendanna. Mér fannst stuðningurinn og hvatningin við minn son vera honum mikils virði, að einhverjir krakkar í Húsaskóla fyndist hann vera svona mikilvægur og gæfu sér tíma til að gera hvatningarbréf og gjafir fyrir hann. Líka svo frábært hvernig Helga kom hvatningargjöfunum til þeirra Bjarka og Védísar. Þessir nemendur eru svo sannarlega heppnir að hafa svona frábæra kennara í Húsaskóla“. 

Kv.Margrét, mamma Bjarka Rúnars 

Sækja skyldar greinar
Load More By Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
Load More In 1. tbl. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Fjórir ólíkir keppnisviðburðir um helgina

Fjórir ólíkir keppnisviðburðir um helgina Það var líf og fjör í íþróttum fatlaðra helgina,…