Heim 1. tbl. 2026 Sögulegt kúluvarp á ÍM um helgina

Sögulegt kúluvarp á ÍM um helgina

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Sögulegt kúluvarp á ÍM um helgina
0
406

Það verður sannkölluð frjálsíþróttaveisla um helgina þar sem Íslandsmót ÍF og Meistaramót Íslands hjá FRÍ verður haldið í Laugardalshöllinni dagana 28. febrúar – 1. mars. Flest af okkar besta frjálsíþrótta fólki mætir til leiks og keppir um Íslandsmeistaratitla í sínum greinum.

Laugardaginn 28 mars kl 15:45 fer fram kúluvarp fyrir sitjandi flokka. Það verður sögulegur viðburður þar sem kastað verður úr nýum kaststól sem búinn var til hjá Suðra. Það eru 5 keppendur skráðir til leiks í greininni sem allir munu fá að prófa nýja kaststólinn. Meðal keppenda verður afreksmaðurinn Hákon Atli Bjarkason en hann hefur mest látið ljós sitt skína í borðtennis.

Stefanía Daney Guðmundsdóttir er meðal keppenda en hún náði lágmörkum inn á Meistaramót Íslands hjá FRÍ í langstökki, 60m og 200m. Stefanía mun því vera eini keppandinn sem keppir á báðum hlutum mótsins.

Ingeborg Eide Garðarsdóttir mætir einnig til leiks en hún keppir í kúluvarpi sunnudaginn 1. mars kl 12:45.

Hæg er að sjá tímaseðil og úrslit mótsins hér

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Keilukast í fyrsta sinn á Íslandi

Sunnudaginn 14. júní hélt Fjörður Kastmót í frábæru veðri á frjálsíþróttavellinum í Kaplak…