Heim 1. tbl. 2025 Suðri meistari í 1. og 2. deild

Suðri meistari í 1. og 2. deild

3 min read
Slökkt á athugasemdum við Suðri meistari í 1. og 2. deild
0
1,006

Íslandsmótinu í sveitakeppni í boccia 2025 lauk í Blue-Höllinni í Reykjanesbæ í dag. Suðri fór á kostum og varð Íslandsmeistari í 1. deild og 2. deild. Nes hafði sigur í rennuflokki og ÍFR hafði sigur í BC 1-5 flokki.

Lionsklúbbar á Suðurnesjum settu sterkan svip á mótið með góðri dómgæslu og ritarastörfum. Þá voru félagar í Lions einnig að afhenda verðlaun á mótinu. Stjórn og starfsfólk Íþróttasambands fatlaðra vill koma á framfæri innilegu þakklæti til Lionshreyfingarinnar sem og stjórnar Íþróttafélagsins Nes fyrir vel skipulagt og öflugt mót.

Alls voru 160 keppendur á mótinu sem í kvöld munu síðan skemmta sér vel í Stapanum í Reykjanesbæ á lokahófi Íslandsmótsins. Hér að neðan má nálgast úrslit helgarinnar.

1.  Deild

1. sæti: Suðri – B: Valdís Hrönn Jónsdóttir, Kristján Jón Gíslason, Sveinn Gíslason
2. sæti: Eik B: Anton Orri Hjaltalín, Ingvar Axel Gunnarsson, Héðinn Jónsson
3. Sæti: Völsungur – A:  Ásgrímur Sigurðsson, Vilberg Lindi Sigmundsson, Kristbjörn Óskarsson

2.  Deild

1. sæti: Suðri – C: Telma Þöll Þorbjörnsdóttir, Ína Owen Valsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir.
2. sæti: Ægir – B:  Róbert Agnar Guðnason, Guðni Davíð Stefánsson, Anton Sigurðsson.
3. Sæti: Fjörður – B: Elín Berg Stefánsdóttir, Ingibjörg H. Árnadóttir, Sverrir Sigurðsson.

Rennuflokkur

1. sæti: Nes: Ástvaldur Ragnar Bjarnason.
2. sæti: Eik: Karl Guðmundsson.
3. Sæti: Ösp: Kristján Vignir Hjálmarsson.

BC 1 til 5

1. sæti: ÍFR – A: Hjörleifur Smári Ólafsson, Rebekka Anna Allwood.
2. sæti: ÍFR – B: Hlynur Bergþór Steingrímsson, Haukur Hákon Loftsson.
3. Sæti: Þjótur / Gróska: Sigurður S. Kristinsson, Aðalheiður Bára Steinsdóttir.

Félögin sem tóku þátt í mótinu og heimasvæði þeirra

Akur: Akureyri
Eik: Akureyri
Fjörður: Hafnarfirði
Gróska: Sauðárkróki
ÍFR: Reykjavík
Nes: Reykjanesbæ
Snerpa: Siglufirði
Suðri: Selfossi
Völsungur: Húsavík
Þjótur: Akranesi
Ægir: Vestmannaeyjum
Ösp: Reykjavík

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Án sjálfboðaliða væri starfið ekki jafn blómlegt og öflugt

Ágæti lesandi Ég vil byrja þetta ávarp mitt á að hrósa Alþingi Íslands fyrir að staðfesta …