Mikilvægt skref stigið með samstarfsyfirlýsingu Special Olympics í Evrópu, Mennta og barnamálaráðuneytisins og Special Olympics á Íslandi.
David Evangelista Framkvæmdastjóri Special Olympics í Evrópu og Sabine Menke sem sér um Unified verkefni SOE komu til landsins í tilefni samstarfsins.
Auk samstarfs tengt íþróttastarfi munu munu valdir skólar á Íslandi setja upp “unified” verkefni sem byggja á samstarfi fatlaðra og ófatlaðra nemenda. Verkefni verða kynnt síðar en meginþema og markmið verður að styðja við og fylgja eftir verkefninu ALLIR MEÐ á vegum ÍF, UMFÍ og ÍSÍ.
Hér má sjá frétt Mennta- og barnamálaráðuneytisins um málið.