Heim 1. tbl. 2025 Fjölmennasta Íslandsmótið í langan tíma

Fjölmennasta Íslandsmótið í langan tíma

4 min read
Slökkt á athugasemdum við Fjölmennasta Íslandsmótið í langan tíma
0
104

ÍFR með Íslandsmeistara í öllum keppnisflokkum

Íslandsmóts ÍF í borðtennis fór fram í Íþróttahúsi ÍFR að Hátúni um helgina. Þetta er eitt fjölmennasta Íslandsmótið sem haldið hefur verið í langan tíma. Mikil ánægja var með framkvæmdina og mætinguna en mótið var í öruggum höndum borðtennisnefndar ÍF. Þá var nokkuð um nýja og unga iðkendur við mótið sem stóðu sig með mikilli prýði.

Hákon Atli Bjarkason fór mikinn við mótið og varð fjórfaldur meistari. Hákon varð m.a. Íslandsmeistari í tvenndarleik með Önnu Malmquist frá Ungmennafélaginu Vísi en hún er á meðal yngstu keppenda til að hafa tekið þátt í Íslandsmóti ÍF í borðtennis ekki orðin 10 ára gömul. Anna tók svo bronsverðlaun í kvennaflokki 1.-10. þar sem Jóna Kristín Erlendsdóttir varð Íslandsmeistari og Vala Waldorf vann til silfurverðlauna.

Annar ungur og efnilegur keppandi frá Akri heitir Már Breki Einarsson og hafnaði í 2. sæti í standandi flokki 6-10 (hreyfihamlaðir) þar sem Jón Grétar Hafsteinsson frá ÍFR varð Íslandsmeistari. Þess má einnig til gamans geta að það var fullt hús ÍFR þessa helgina þar sem félagið var með Íslandsmeistara í öllum keppnisflokkum!

Myndasafn frá mótinu

Hér að neðan má sjá heildarúrslit mótsins.

Tvíliðaleikur       

1.  Hákon Atli Bjarkarson og Tómas Björnsson    ÍFR/ÍFR
2.  Vova Chernyavsky og Agnar Ingi Traustasonb  ÍFR/ÍFR
3.-4    Óskar Aðils Kemp og Baldur Jóhannesson  ÍFR/ÍFR
3.-4.   Lárus Thor Valdimarsson og Kristján Rúnar Egilsson  ÍFR/ÍFR

Tvenndarleikur  

1.  Hákon Atli Bjarkarson og Anna Malmquist ÍFR/UMF Vísir
2.  Vova Chernyavsky og Vala Waldorf    ÍFR/ÍFR
3.  Agnar Ingi Traustason og Jóna Kristín Erlendsdóttir ÍFR/ÍFR

Flokkur 11 konur    

1.  Inga Hanna Jóhannesdóttir   ÍFR
2.  Soffía Rúna Jensdóttir  ÍFR
3.  Hildigunnur J. Sigurðardóttir   ÍFR

Flokkur 11 karlar   

1.  Óskar Aðils Kemp    ÍFR
2.  Lárus Thor Valdimarsson ÍFR
3.  Baldur Jóhannesson  ÍFR

Sitjandi flokkur 1-5    

1.  Hákon Atli Bjarkarson   ÍFR
2.  Vova Chernyavsky    ÍFR
3.  Kolbeinn Skagfjörð  Akur

Standandi flokkur 6-10  

1.  Jón Grétar Hafsteinsson ÍFR
2.  Már Breki Einarsson Akur
3.  Björn Harðarson ÍFR

Kvennaflokkur 1-10  

1.  Jóna Kristín Erlendsdóttir  ÍFR
2.  Vala Waldorf    ÍFR
3.  Anna Malquist   UMF Vísir

Opinn flokkur

1.  Hákon Atli Bjarkarson   ÍFR
2.  Lárus Thor Valdimarsson ÍFR
3.-4.   Vova Chernyavsky    ÍFR
3.-4.   Óskar Aðils Kemp    ÍFR

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Vorboðinn ljúfi betur þekktur sem Kiwanisklúbburinn Hekla

Nýverið fékk Íþróttasamband fatlaðra góða gesti í heimsókn þegar félagar frá Kiwanisklúbbn…