Heim 2. tbl 2021 Ályktun Íþróttasambanda fatlaðra á Norðurlöndum vegna stöðunnar í Úkraínu

Ályktun Íþróttasambanda fatlaðra á Norðurlöndum vegna stöðunnar í Úkraínu

5 min read
Slökkt á athugasemdum við Ályktun Íþróttasambanda fatlaðra á Norðurlöndum vegna stöðunnar í Úkraínu
0
1,023

Hér á eftir fer sameiginleg yfirlýsing íþróttasambanda fatlaðra á Norðurlöndum sem send hefur verið til Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC)

Nord-HIF – Íþróttasambönd fatlaðra á Norðurlöndum (Finnland, Danmörk, Noregur, Færeyjar, Ísland og Svíþjóð) og Ólympíuráð landanna (NPC) hafa rætt árásir Rússa á Úkraínu og möguleg áhrif þeirra á komandi Ólympíumót fatlaðra/Paralympic Games í Peking. 

Í augnablikinu eru víðtækar og samræmdar alþjóðlegar refsiaðgerðir í gangi af hálfu ESB á ýmsum vettvangi. Árás Rússa á úkraínsku þjóðina og brot þeirra á alþjóðalögum krefst alþjóðlegar fordæmingar og refsiaðgerða. 

Saga Ólympíumóts fatlaðra/Paralympic Games á uppruna sinn til þeirra hryllilegu afleiðinga sem síðari heimsstyrjöldin olli.  

Við sem samtök fatlaðra skulum vera skýr í okkar málflutning og standa sterk gegn tilefnislausum hernaðarárásum á lýðræðisþjóðir. 

Við fordæmum harðlega árásir Rússa á Úkraínu og vottum úkraínsku þjóðinni okkar dýpstu samúð og öllum þeim sem verða fyrir áhrifum þessara hræðilegu átaka. 

Úkraína er land með mikla íþróttahefð og Nord-HIF – Íþróttasambönd fatlaðra á Norðurlöndum og Ólympíuráð þeirra standa með úkraínsku þjóðinni.  

Með þessum hernaðarárásum brýtur Rússland (og Hvíta-Rússland óbeint) allar mannréttindareglur og stofnar öryggi allra þeirra þjóða sem þátt taka í Ólympíumóti fatlaðra vetraríþróttum/Winter Paralympics í hættu.  

Nord-HIF og Ólympíuráð fatlaðra (NPC) á Norðurlöndum mæla eindregið með að IPC íhugi að vísa ólympíunefndum fatlaðra frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi og keppendum þeirra frá þátttöku í keppnum fatlaðra sem framundan eru í Peking.  
Við skorum einnig á Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra að gera allt sem í hennar valdi stendur til að tryggja að úkraínskir ​​íþróttamenn fatlaðra geti tekið þátt í vetrarleikunum, Paralympics, sem framundan eru. 

Fyrir hönd Nord-HIF og allrar íþróttahreyfingar fatlaðra á Norðurlöndum vonum við innilega að hægt verði að finna friðsamlega lausn til að binda enda á núverandi átök og þjáningar. 

Undir þessa ályktun skrifa allir formenn Nord-HIF – íþróttasamtaka fatlaðra á Norðurlöndum; 

Åsa Llinares Norlin, NPC Svíþjóð 

Vibeke Sorensen, NPC Noregur 

Sari Rautio, NPC Finnland  

John Peterson NPC Danmörk 

Þórður Árni Hjaltested, NPC Ísland 

Petur Elias Petersen, NPC Færeyjum 

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 2. tbl 2021
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Ísland með fjóra fulltrúa á EM í sundi

Evrópumeistaramót IPC í sundi í 50m laug fer fram í Madeira í Portúgal dagana 21.-27. aprí…