Heim 1. tbl. 2024 Allir með Leikarnir

Allir með Leikarnir

1 min read
Slökkt á athugasemdum við Allir með Leikarnir
0
278

Laugardaginn 9. nóvember fara fram Allir með leikarnir sem verður sannkölluð íþróttaveisla í Laugardalnum fyrir börn á grunnskólaaldri. Leikarnir eru hluti af verkefninu Allir með, með það að markmiði að fjölga tækifærum fatlaðra barna til íþróttaiðkunar.

Leikarnir eru samstarfsverkefni og þeir aðilar sem koma að framkvæmd þess eru Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Knattspyrnusamband Íslands, Handboltasamband Íslands, Körfuknattleikssamband Íslands, Fimleikasamband Íslands, Frjálsíþróttasamband Íslands og Íþróttasamband fatlaðra.

Mótið fer fram laugardaginn 9. nóvember bæði í Laugardalshöllinni og fimleikasal Ármanns. Nánari upplýsingar koma á næstu dögum inn á www.allirmed.com

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2024
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Sonja sló Íslandsmet í kvöld

Sonja Sigurðardóttir synti í morgunn í seinni undanriðli af tveimur. Hún kom þar í mark á …