Heim 1. tbl. 2026 Valdimar verkefnastjóri ALLIR MEÐ hefur lyft grettistaki og stuðlað að viðhorfsbreytingu

Valdimar verkefnastjóri ALLIR MEÐ hefur lyft grettistaki og stuðlað að viðhorfsbreytingu

12 min read
Slökkt á athugasemdum við Valdimar verkefnastjóri ALLIR MEÐ hefur lyft grettistaki og stuðlað að viðhorfsbreytingu
0
66

Nú er komið að tímamótum þar sem Valdimar Gunnarsson stígur frá borði eftir þriggja ára starf og Thelma Dögg Grétarsdóttir, tekur við verkefnastjórahlutverki ,,ALLIR MEД

Samstarf til árangurs

Verkefnið ALLIR MEÐ er afrakstur funda starfshóps félags og barnamálaráðuneytisins sem hófust árið 2020. Starfshópinn skipaði fulltrúi ÍF, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, fulltrúi Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal og fulltrúi ÖBÍ, Þórdís Viborg. Fulltrúi ráðuneytisins var Þór Þórarinsson en hann átti stóran þátt í hugmyndavinnan varð að raunhæfu verkefni.

Markmið var að finna leið til að auka þátttöku fatlaðra barna í íþróttastarfi en það var öllum ljóst að þar var um að ræða krefjandi og umfangsmikið verkefni. Fyrsta verkefni hópsins var ráðstefnan Farsælt samfélag – íþróttir fyrir alla sem haldin var í apríl 2022. Þar var kallað til til samtals við íþróttahreyfinguna, ÍSÍ og UMFÍ auk ÍF en til þessa höfðu verkefni þessu tengd nær alfarið verið á borði ÍF. Forsvarsfólk ÍF, ÍSÍ og UMFÍ staðfesti áhuga á samstarfi og allir voru sammála um að málefnið væri brýnt. Fulltrúi sambands íslenskra sveitarfélaga hélt erindi þar sem fram kom áhugi á að styðja við verkefnið. Þá mættu á ráðstefnuna ráðherrar frá þremur ráðuneytum sem leitað hafði verið til með fjárhagslegan stuðning við verkefnið. Allir lýstu yfir áhuga á framgangi verkefnisins. Lykilatriði á öllum sviðum var aukið samstarf.

Í kiölfar þess að ráðstefnugestir tóku þátt í vinnustofu með áherslu á mismunandi málaflokka var unnið að verkefnaáætlun innleiðingar samstarfsverkefnisins. Það var mjög stórt skref og þýðingarmikið að kalla íþróttahreyfinguna til samstarfs. Formleg undirritun samstarfs til þriggja ára fór fram í desember 2022. Ráðherrar þriggja ráðuneyta, félags-, mennta- og heilbrigðisráðuneytis undirrituðu þá samning um alls 20 milljóna framlag hvert. 2026 var samningurinn endurnýjaður og staðfest sama framlag til þriggja ára.

Innleiðing af lífi og sál

Í janúar 2023 tók verkefnastjóri ALLIR MEÐ til starfa en leitað hafði verið til Valdimars Gunnarssonar fyrrverandi Framkvæmdastjóri UMSK að leiða þetta nýja verkefni.

Hlutverk verkefnastjóra var að innleiða verkefnið á landsvísu, horfa til verkefnaáætlunar og markmiða en jafnframt var gefið frelsi til hugmyndavinnu og útfærslu. Í stuttu máli má segja að Valdimar Gunnarsson hafi á þessum þremur árum, lyft grettistaki. Hann vann hörðum höndum að því að kveikja neista, kalla íþróttahreyfinguna og sveitarfélög til samstarfs og opna augu fólk fyrir mikilvægi þess að öll börn fái tækifæri til að vera með í íþróttastarfi. Með tilkomu hvatasjóðs íþróttahreyfingarinnar fengu ný verkefni stuðning og þróun hugmynda og nýrra tilboða fóru í farveg. Fræi var sáð sem vex og dafnar innan mismunandi tímaramma en hvert og eitt sprotaverkefni skiptir máli. Börn og ungmenni hafa fengið ný tækifæri, íþróttahreyfingin öll var kölluð til verka og horft er til sveitarfélaga með stuðning við starf íþróttafélaga sem vilja taka keflið og opna dyrnar fyrir alla.

Það hefur verið lærdómsríkt að fylgjast með og hvetja Valdimar til dáða á þeirri flóknu vegferð sem verkefnið krafðist. Fulltrúar ÍF, ÍSÍ og UMFÍ skipuðu stýrihóp eða bakteymi sem verkefnastjóri kallaði til funda. Öll erum við sammála um að enginn var betur til þess fallinn en eimmitt Valdimar, að leiða verkefnið fyrstu skrefin og skila af sér góðu verki. Þó tölfræði sé skýrasti mælikvarðinn þá er ljóst að viðhorfsbreyting var það sem myndi skila mestu til framtíðar. Að þetta málefni væri mál okkar allra og að öll börn skiptu máli.

Í heimi íþrótta fatlaðra geta leynst háir veggir og ósýnilegar hindranir . Það þarf að yfirstíga til að ná inn nýjum iðkendum en þá er aðeins hálfur sigur unninn. Þegar skrefið er loks tekið á fyrstu æfinguna, hvað þá? Er upplifun barnsins og aðstandenda jákvæð eða liggur leiðin til baka og inn í lokaðan heim félagslegrar einangrunar. Valdimar lagði áherslu á að ná til sem foreldra, auk íþróttafélaga og þjálfara til að geta metið stöðuna og sett í forgang hverju sinni það sem gæti haft jákvæð áhrif á framgang verkefnisins.

Í gegnum ALLIR MEÐ verkefnið hefur tekist að vekja fólk til umhugsunar og í raun skapa viðhorfsbreytingu innan íþróttahreyfingarinnar og í samfélaginu. Á stór Reykjavíkursvæðinu sem úti á landi hefur raunveruleg breyting átt sér stað. Nærsamfélagið sýnir ábyrgð og fulltrúar sveitarfélaga og íþróttafélaga leita leiða til að bregðast við og skapa ný tækifæri. Með tilkomu svæðisstjóra ÍSÍ og UMFÍ fékk grasrótarstarfið mikilvæga innspýtingu og tækifæri sköpuðust til aukins samstarfs lykilaðila. Hvatasjóðurinn hefur verið og verður áfram lykilforsenda sprotaverkefna og því fjármagni er vel varið. Á hátíðisdögum fjalla ræður um á gildi góðrar lýðheilsu og jákvæð áhrif forvarnarverkefna og verkefnið ALLIR MEÐ fellur sannarlega þar undir.

Íþróttasamband fatlaðra og Special Olympics á Íslandi munu áfram fagna samstarfi við verkefnastjóra ALLIR MEÐ. Hjá ÍF og íþróttafélögum fatlaðra er áratuga reynsla og þekking og fjöldi þjálfara og sérfræðinga á ólíkum sviðum eru nú sem fyrr til ráðgjafar og aðstoðar. Markmiðið er áfram skýrt og nú er öll íþróttahreyfingin komin til samstarfs. Sumir taka meira frumkvæði en aðrir en hvert skref skiptir máli, -íþróttahreyfingin er að taka ný skref í þágu allra barna, íþróttir eiga að vera fyrir alla.

ÞAKKIR

Kærar þakkir Valdimar fyrir að leggja líf og sál í þetta mikilvæga verkefni. Það verður ekki auðvelt að feta í fótspor þín en við bjóðum Thelmu Dögg, nýjan verkefnastjóra, innilega velkomna til starfa. Hún mun halda keflinu hátt á lofti og taka við stýrinu næstu þrjú árin með kerruprófið klárt. Við vitum líka að þú verður ávallt viðbúin ef útkall berst!

f.h. Stýrihóps verkefnisins

Anna Karólína Vilhjálmsdóttir

Frkvstj. Þróunarsviðs ÍF / Special Olympics á Íslandi

Sækja skyldar greinar
Load More By Melkorka Hafliðadóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Fyrsti fundur Íþróttamannanefndar ÍF

Fimmtudaginn 4. júní var haldinn fyrsti formlegi fundur íþróttamannanefndar ÍF. Á fundinum…