Heim 1. tbl. 2026 Tækifæri í stað takmarkana hjá Gló Æfingastöð

Tækifæri í stað takmarkana hjá Gló Æfingastöð

17 min read
Slökkt á athugasemdum við Tækifæri í stað takmarkana hjá Gló Æfingastöð
0
203

Hjá Gló Æfingastöð á Háaleitisbraut fer fram fjölbreytt og mikilvægt starf með börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra. Þar sækja árlega um 1700 einstaklingar þjónustu sjúkra- og iðjuþjálfa, en stærstur hluti þeirra eru börn og ungmenni með fjölbreyttar þarfir, styrkleika og áskoranir. Starfið hefur þróast mikið í gegnum árin og tekur í dag til snemmtækrar íhlutunar, endurhæfingar, ráðgjafar, hópastarfs, teymisvinnu og samstarfs við nærumhverfi barna.

Gló stuðningsfélag, sem áður hét Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, hefur veg og vanda af starfsemi Gló Æfingastöðvar og Gló Reykjadals, sumarbúða fyrir fötluð börn og ungmenni. Leiðarljós félagsins er skýrt: Tækifæri í stað takmarkana. Á heimasíðu Gló kemur fram að félagið vinni að aukinni samfélagsþátttöku barna og ungmenna með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir.

„Við erum í rauninni að þjónusta börn frá fæðingu og upp að 18 ára aldri en stærstur hluti skjólstæðinga okkar er undir 12-13 ára“ segir Kolbrún Kristínardóttir yfirsjúkraþjálfari á Gló Æfingastöð. Hún segir að einnig sæki lítill hluti fullorðinna einstaklinga þjónustu hjá Gló sem hafa þá verið í þjónustu frá barnæsku og af einhverjum ástæðum ekki getað farið annað, auk þess sem boðið sé upp á sjúkraþjálfun fyrir einstaklinga með Parkinson.

Hvati settist niður með henni og Gunnhildi Jakobsdóttur yfiriðjuþjálfa hjá stöðinni. Hjá Kolbrúnu og Gunnhildi er í mörg horn að líta og í nógu að snúast. Það kemur glögglega í ljós þegar þær eru beðnar um að segja frá daglegu starfi sínu.

„Það er ansi fjölbreytt!“ segir Kolbrún og þær hlæja báðar. Báðar sinna þær klínísku starfi með börnum og fjölskyldum en einnig starfsmannamálum, stefnumótun, þróun starfseminnar og kynningarstarfi út á við. „Svo erum við líka fullrúar Gló í samstarfsverkefnum  á borð  við Allir með,  með Íþróttafélagi fatlaðra í  Reykjavík og fleirum,“  segir Gunnhildur.  „Það er í rauninni lítið sem fellur ekki undir starfið,“ segir Kolbrún og lýsir vel þeim veruleika sem blasir við í þjónustu sem þarf að bregðast við fjölbreyttum þörfum barna, fjölskyldna og samfélagsins.

Þátttaka í fyrirrúmi

Saga Gló Æfingastöðvar er löng og farsæl en stöðin fagnar 70 ára afmæli í ár. 

„Við vorum upphaflega stofnuð til þess að sinna börnum með líkamlegar þarfir en starfið í dag er orðið mun víðtækara. Við horfum á endurhæfingu í víðu samhengi,“ segir Gunnhildur. Hún bendir á að þróunin hafi að hluta til fylgt breyttum þörfum barna og fjölskyldna, en einnig skorti á þjónustu fyrir ýmsa hópa. Þannig hafi þjónustan í auknum mæli náð til fjölskyldna barna með fjölbreyttar áskoranir meðal annars í gegnum félagsfærnihópa, ráðgjöf og þverfaglega nálgun.

Kolbrún tekur undir þetta og segir enn ríka áherslu á þjónustu við börn með þarfir af líkamlegum toga en að markmiðið sé stærra en að æfa ákveðna færni einangrað. „Við erum að vinna á mismunandi hátt að því að efla færni þannig að börnin geti tekið þátt í öllu því sem þeim langar í daglegu lífi,“ segir hún.

Þessi hugsun endurspeglast vel í F-orðunum í þroska og þátttöku: færni, fjölskylda, form, fjör, félagsskapur og framtíð sem er hugmyndafræðilegur bakgrunnur starfseminnar á Gló  og byggir á ICF-ramma Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Á heimasíðu Gló er F-orðunum meðal annars lýst þannig að byggt sé á styrkleikum, stutt við þátttöku í því sem vekur áhuga, skapað rými fyrir félagsleg tengsl og horft til þess að dagurinn í dag leggi grunn að framtíðinni.

Fjölskyldumiðuð þjónusta í nærumhverfi barnsins

Eitt af því sem einkennir starf Gló Æfingastöðvar er að þjónustan nær út í samfélagið. Börn og fjölskyldur koma vissulega í beina þjálfun en stór hluti vinnunnar felst í ráðgjöf, teymisvinnu og stuðningi við þau sem koma að daglegu lífi barnanna.

„Þjónustu við börn og fjölskyldur er ekki best ráðstafað með því að börn séu einungis að koma hingað til okkar í einhverjar 40 mínútur í þjálfun,“ segir Gunnhildur. Hún segir mikilvægan hluta starfsins felast í því að vera hluti af teymi barnsins, styðja við foreldra og starfsfólk í leikskólum og skólum og hjálpa til við að skapa aðstæður þar sem barnið getur nýtt styrkleika sína í sínu daglega umhverfi.

Þetta endurspeglast vel í starfsemi Gló Æfingastöðvar þar sem markmiðið er alltaf að efla þátttöku í daglegu lífi og byggja grunn að farsælli framtíð.

Samstarf við íþróttahreyfinguna

Gló hefur um árabil átt gott samstarf við aðila innan íþróttahreyfingarinnar og hefur meðal annars stutt við verkefni sem miða að því að tengja börn og fjölskyldur við íþróttastarf. Í viðtalinu nefna Kolbrún og Gunnhildur sérstaklega samstarf við Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttir og Hákon Atla  Bjarkason en einnig Íþróttasamband fatlaðra, Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík, ÍBR og verkefni á borð við Parastart, Young Athletes Program (YAP) og Allir með verkefnið.

„Okkur hefur verið ljúft og skylt að taka þátt í því frábæra verkefni því við erum með svo góða tengingu við mikið af fjölskyldum og börnum,“ segir Gunnhildur um Allir með verkefnið. Hún segir fjölskyldur stundum hafa verið varfærnar við að skrá börnin sín í íþróttir, meðal annars vegna óvissu um hvort hentug úrræði séu til staðar. Hlutverk Gló hafi því meðal annars verið að tengja saman íþróttahreyfinguna og börnin sem vilja taka þátt.

Fyrir börn með fatlanir eða fjölbreyttar stuðningsþarfir geta leiðirnar inn í íþróttastarf verið flóknari og börn með fötlun mæta oft fleiri hindrunum þegar kemur að íþróttaþátttöku, meðal annars neikvæðu viðhorf í umhverfi, skorti á tækifærum eða framboði og ófullnægjandi aðgengi.

Sem samstarfsverkefni nefnir Kolbrún nefnir einnig Parastart sem Gló stóð að með Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík og ÍBR, sem miðaði að því að efla þátttöku barna með hreyfihömlun í íþróttum. Markmiðið er ekki endilega að öll börn fari sömu leið heldur að hvert barn fái tækifæri til að prófa, finni hverju það hefur áhuga á og upplifi sig sem þátttakanda.

„Partur af þessu er að börn finni íþrótt sem þeim langar til að æfa og byrji að æfa sína íþrótt,“ segir Kolbrún. Hún nefnir dæmi um barn sem kom í sjúkraþjálfun á hestbaki hjá Gló og fór þaðan áfram í hestamennsku. Þar varð þjálfunin ekki lokatakmark í sjálfu sér heldur brú inn í áhuga, tómstund og samfélag.

Tækifæri verða til í umhverfinu

Gló Reykjadalur er annar mikilvægur hluti starfsemi Gló stuðningsfélags. Þar hefur um áratugaskeið verið skapaður vettvangur þar sem fötluð börn og ungmenni fá tækifæri til þátttöku í tómstundum og að tilheyra jákvæðu vinasamfélagi.

Þessi áhersla á þátttöku tengir saman starf Æfingastöðvar og Reykjadals og skapar tækifæri til að tilheyra hópi, eignast vini, efla heilsu, prófa nýja hluti, byggja upp sjálfstraust og upplifa gleði.

Gló Æfingastöð er hluti af heilbrigðisþjónustu barna og er rekin samkvæmt samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Reykjadalur er hins vegar rekinn með öðrum hætti, meðal annars með styrkjum, fjáröflunum og sölu á Kærleikskúlunni. Í viðtalinu leggja Kolbrún og Gunnhildur áherslu á að öll starfsemi Gló sé óhagnaðardrifin og byggi á skýrum samfélagslegum tilgangi.

Þær nefna einnig að mikil velvild hafi verið í garð starfseminnar, bæði Reykjadals og Gló Æfingastöðvar. Sú velvild skipti miklu máli, enda séu verkefnin mörg og þörfin mikil.

Að sjá möguleikana

Í maí 2026 hélt Gló Æfingastöð, í samstarfi við Ráðgjafar- og greiningarstöð, Vorráðstefnu undir yfirskriftinni Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna. Um 510 manns tóku þátt og ráðstefnan skapaði mikilvægt samtal um viðhorf, þjónustu og framtíð fatlaðra barna.

Yfirskrift ráðstefnunnar fangar vel kjarnann í starfi Gló. Þjónustan snýst ekki aðeins um að bregðast við skerðingum eða áskorunum, heldur um að skapa raunverulegar aðstæður til þátttöku. Að sjá hvað barnið vill, getur og hefur áhuga á. Að styðja fjölskylduna. Að vinna með umhverfinu. Að tengja saman þjónustu, skóla, tómstundir og samfélag.

Í grunninn snýst þetta um að börn fái að vera börn. Að þau fái að leika, prófa, æfa, tilheyra, eignast vini og byggja upp eigin framtíð.

Heimasíða Gló

Viðtal/ Gunnar Egill Daníelsson

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Thelma Dögg tekur við Allir með verkefninu af Valdimari

„Mun halda áfram að bögga hann“ Thelma Dögg Grétarsdóttir, íþróttafulltrúi hjá Íþróttasamb…