Heim 1. tbl. 2025 Vinnustofa Allir með í Skagafirði 2. júní

Vinnustofa Allir með í Skagafirði 2. júní

5 min read
Slökkt á athugasemdum við Vinnustofa Allir með í Skagafirði 2. júní
0
89

UMSS, Svæðisstöðvar íþróttahéraða og Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) boða til vinnustofu fyrir forsjáraðila, íþróttaþjálfara, starfsfólk skóla og áhugafólk um íþróttir.  

Í kynningu á vinnustofunni segir:

Á vinnustofunni ætlum við að ræða hvernig við getum komið af stað skipulögðum æfingum eða komið fötluðum og þeim sem finna sig ekki í almennum íþróttum betur inn í það íþróttastarf sem er nú þegar í boði í Skagafirði. Hér í Skagafirði hefur verið takmarkað framboð í boði af íþróttum fyrir fatlaða eníþróttastarf í Skagafirði er mjög fjölbreytt og því mikil sóknarfæri í að efla íþróttir fyrir fatlaða. 

Það er ósk okkar að þið sjáið ykkur fært um að mæta í Hús frítímans 2. júní kl. 17:00 þar sem við getum átt góða stund, deilt sjónarmiðum okkar og tekið þátt í að efla íþróttastarf fyrir fatlaða í Skagafirði. 

Vinnustofa um íþróttir fatlaðra í Skagafirði 

Staðsetning vinnustofu: Hús frítímans, Sæmundargötu 7 

Dagsetning: 2. júní 2025 

Kl. 17:00 – 19:00 

Fyrir hverja: Alla þá sem hafa áhuga á því að efla íþróttastarf fyrir fatlaða og þá sem finna sig ekki í almennu íþróttastarfi.  

Dagskrá:  

Kl. 17:00 – Setning vinnustofu 
Kl. 17:05 – Valdimar, Allir með 
Kl. 17:20 – Annika, Júdódeild Tindastóls 
Kl. 17:35 –  Erindi frá foreldri 
Kl. 17:50 –  Anna Karolína, Íþróttasamband Fatlaðra 
Kl. 18:05 – Vinnuhópar og umræður 
Kl. 18:50 – Samantekt 

*Athugið dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.  

SKRÁNING – Vinsamlegast skráið ykkur hér https://forms.office.com/e/GARewKxVxE 

Allir með verkefnið 

Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggja ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi. 

Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu. 

Íþróttahreyfingin sér um framkvæmd verkefnisins sem verður unnið á tímabilinu 2023 – 2025. 

Markmið: 

Að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþrótthreyfinguna 

Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir – með viðeigandi aðlögun. 

Að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap 

Verkefnið fór af stað í byrjun árs 2023 og var Valdimar Gunnarsson ráðinn verkefnisstjóri og hefur hann aðsetur á Skrifstofu ÍF 

Hér er hægt að skoða heimasíðu Allir með 

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Íþróttasamband fatlaðra og Klifursamband Íslands vinna saman að framþróun klifurs á Íslandi

Nýverið gerðu Íþróttasamband fatlaðra og Klifursamband Íslands með sér samstarfssamning um…