
Sumarmeistaramót Íslands (SMÍ) fer fram helgina 28-29. júní í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Mótið er opið öllum keppendum 13 ára og eldri og verður keppt samkvæmt reglum World Aquatics, European Aquatics, IPC og SSÍ. Mótið er með IPC keppnisleyfi og því gott tækifæri að taka þátt. Keppendur þurfa að hafa náð lágmarkstímum innan tímabilsins 14. júní 2024 til 12. júní 2025. Ef sundfólk hefur náð lágmarki í a.m.k. einni grein, má það bæta við sig allt að þremur greinum án lágmarka svo framarlega sem pláss leyfir og það á gildan tíma í þeim greinum.
Að móti loknu býður Sundfélag Hafnarfjarðar til lokahófs sem haldið verður í lauginni sjálfri. Verður þar boðið upp á grillaða hamborgara og meðlæti. Skrá þarf á lokahóf fyrir 24. Júní með því að senda tölvupóst á sh@sh.is og kostar 4.000kr á mann, taka þarf fram ofnæmi eða óþol við skráningu.
Skráningarfrestur er til og með 19. júní 2025 og skulu skráningar sendast rafrænt á netfangið sundmot@iceswim.is
Upplýsingabréf um mótið má finna hér