
Íþróttasamband fatlaðra og Össur á Íslandi hafa framlengt yfir þrjátíu ára farsælt samstarf sitt um fjögur ár til viðbótar. Nýr samningur gildir til og með Paralympics-leikunum í Los Angeles árið 2028.
Össur var stofnað á Íslandi árið 1971 og er í dag alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks. Embla Medical, móðurfélag Össurar, er leiðandi afl á heimsvísu og hefur markvisst verið að hasla sér völl á fleiri sviðum heilbrigðistækninnar. Höfuðstöðvar félagsins og stærsta rekstrareining þess, sem tileinkuð er vörum frá Össuri, eru á Íslandi. Hjá félaginu starfa um 4.000 manns í 36 löndum.
Jón Björn Ólafsson framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF, Þórður Árni Hjaltested formaður ÍF og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical, skrifuðu undir nýja samninginn í höfuðstöðvum félagsins við Grjótháls í Reykjavík.
„Samstarfið við Össur hefur verið mikið afbragð í gegnum tíðina. Sjálfur hóf ég störf hjá ÍF árið 2008 og hef allar götur síðan átt í miklu og góðu samstarfi við fulltrúa Össurar. Þá höfum við Íslendingar verið svo lánsöm að eiga öflugt íþróttafólk sem hefur komist í úrvalshóp Össurar, Team Össur, sem samanstendur jafnan af fremsta íþróttafólki heims úr röðum fatlaðra. Nýr samningur til 2028 er mikið ánægjuefni fyrir íþróttastarfsemi fatlaðra í landinu, enda eru spennandi hlutir að gerast bæði á afrekssviðinu og í grasrótinni, til dæmis með verkefnum eins og Allir með,“ sagði Jón Björn Ólafsson framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF.
„Við erum gríðarlega stolt af því að framlengja samstarfið við Íþróttasamband fatlaðra og leggja okkar af mörkum til að bæta aðgengi fatlaðra að íþróttum og styðja við framgang íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Samstarfið hefur staðið yfir í rúma þrjá áratugi sem ber því vitni um árangursríka samvinnu. Við hlökkum til næstu ára með hápunktinum á Paralympics í Los Angeles, þar sem íþróttafætur frá Össuri verða áberandi á hlaupabrautinni,“ sagði Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical.
Mynd frá vinstri (TDG)/ Þórður Árni Hjaltested formaður ÍF, Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical og Jón Björn Ólafsson framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF.