
Nýverið gerðu Íþróttasamband fatlaðra og Klifursamband Íslands með sér samstarfssamning um gagnkvæma skuldbindingu við framþróun á Para-klifri (klifur fatlaðra) á Íslandi. Íþróttin er fremur ný af nálinni hérlendis fyrir fatlaða en glöggir gætu hafa tekið eftir því að klifur verður á meðal þeirra íþróttagreina sem verða í boði á Paralympics í Los Angeles 2028.
Nú þegar hafa Íslendingar látið að sér kveða í Para-klifri en það var Gauti Stefánsson sem vann til bronsverðlauna í línuklifri á Norðurlandamótinu 2024.
Samstarf ÍF og KÍ er á frumstigum og lítur aðallega að því að efla grasrótina og tryggja aðgengi fatlaðra að því að kynnast íþróttinni og æfa hana. Til þessa hefur ÍF gert aðra samstarfssamninga er lúta að mótahaldi en á þessum stigum er mótahald fatlaðra í klifri hér innanlands skammt á veg komið.
„Við erum með nokkra álíka samninga við önnur sérsambönd og rauði þráðurinn í þeim öllum er að efla þátttöku fatlaðra í íþróttastarfi og efla umgjörð móta innanlands. Sem dæmi hafa sundmenn Íslands síðustu ár synt á sameiginlegu mótahaldi í 50 og 25m laug og eru þau mót í afar öruggum og öflugum höndum SSÍ og þeirra aðildarfélaga með fulltyngi sundnefndar ÍF og aðildarfélaga ÍF. Með það samstarf ríkir mikil ánægja og ef við höldum rétt á spilunum eru allar forsendur til þess að samstarf ÍF og KÍ geti orðið bæði langt og farsælt og vonandi mun það á næstu árum teygja sig inn í mótahaldið hérlendis líka,“ sagði Þórður Árni Hjaltested formaður ÍF.
„Klifuríþróttin hefur verið í hröðum vexti undanfarinn ár ekki síst nú í kjölfarið á því að hún er komin inn á Ólympíuleika og Paralympics. Þróun klifurs hér á landi er ekki síður hröð en á alþjóðavísu. Það er stefna KÍ að við áframhaldandi þróun íþróttarinnar hér á landi verði para-klifur mikilvægur þáttur innan greinarinnar og að í náinni framtíð byggist upp virkt para-klifur starf, til að byrja með barna- og unglingastarf en einnig afreksstarf í kjölfarið. Fyrstu skrefin hafa þegar verið tekin með þáttöku Gauta Stefánssonar á Norðurlandamótum. En við væntum þess að þessi samstarfssamningur verði uppafið af næstu skerfum sem þarf að taka til að koma á fót skipulögðu starfi í para-klifri,” sagði Benedikt Gunnar Ófeigsson formaður Klifursambands Íslands.
Mynd/ JBÓ – Bendikt formaður KÍ og Þórður Árni formaður ÍF með nýja samstarfssamninginn.
