Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sveitakeppni í boccia var sett í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í morgun. Um 35 sveitir frá níu félögum eru mættar til leiks, en það er Íþróttafélagið Ægir sem er framkvæmdaraðili mótsins.
Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdarstjóri Herjólfs, bauð gesti velkomna við setningarathöfnina. Mikið fjör var á setningunni þegar lið keppenda voru kynnt inn með ljósasýningu. Ólafur kynnti einnig lag mótsins sem verður spilað yfir helgina, og fararstjórar liða voru dregnir fram á völlinn þar sem þeir tóku þátt í leikjum, keppendum til mikillar skemmtunar.
Í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag, verður keppt til úrslita í deildum, rennuflokki og í flokki BC1–BC4, þannig að tveir Íslandsmeistarar verða krýndir um helgina.
Lokahóf mótsins fer fram í Höllinni á sunnudagskvöld, og lofað er miklu stuði og góðri stemningu.


