
Kúluvarparinn Ingeborg Eide Garðarsdóttir frá Ármanni lauk í dag keppni á opna franska frjálsíþróttamótinu sem fram fer á Stade Charléty í París. Ingeborg hafnaði í 2. sæti með kasti upp á 9,00 metra.
Ingeborg sem keppir í flokki F37 (hreyfihamlaðir) kastaði eins og áður greinir lengst í dag 9,00 metra en kastsería dagsins var:
8,84 – 8,50 – 9,00 – 7,87 – 8,97 – 8,55
Hin kanadíska Carleigh Hiltz hafði sigur í keppninni en hún kastaði 9,95 metra og í 3. sæti varð Anna Luxova frá Tékklandi sem kastaði lengst 8,68 metra.
Ingeborg hefur því lokið keppni í Frakklandi en Stefanía Daney Guðmundsdóttir frá UFA keppir í langstökki T20 (þroskahamlaðir) á morgun.
Myndir/ Laurent Bagins – Ingeborg á Stade Charléty í dag.

