Heim 1. tbl. 2025 Hjólastólakörfuboltinn vinsæll í Kringlunni

Hjólastólakörfuboltinn vinsæll í Kringlunni

2 min read
Slökkt á athugasemdum við Hjólastólakörfuboltinn vinsæll í Kringlunni
0
888

Kynning á Allir með

Síðastliðinn laugardag var haldin skemmtileg kynning á Allir með verkefninu í Kringlunni. Verkefnið og staða þess var kynnt og svo tilgangur þess og markmið.

Sérstök áherslar var á að kynna Íslandsleikana sem verða á Selfossi 29. -30. mars og svo nýtt verkefni sem er að fara af stað þessa dagana. ÍR í Breiðholti og Fjölnir í Gravarvogi eru að byrja með hjólastólakörfubolta fyrir hreyfihömluð börn á aldrinum 7 – 14 ára. Æfingarnar verða á sunnudögum í Skógarseli kl 15:30 og svo í Egilshöll kl. 11:00.

Kynningin gekk mjög vel og  fylgdust margir með og mikil stemning myndaðist í húsinu og ekki skemmdi það fyrir að VÆB drengirnir tóku þátt í uppákomunni við mikil fagnaðarlæti aðdáenda.

Keppt var í tveir á tvo milli landsliðsfólks í körfubolta og fleiri hópar létu til sín taka. Ungir iðkendur frá ÍR og Fjölni mættu í keppnisbúningum sínum og settu svip á viðburðinn. Að endingu fengu allir sem vildu að prófa stólana og skjóta á körfu. Velheppnaður dagur í Kringlunni og mikil og jákvæð umfjöllun hefur verið um viðburðin í fjölmiðlum.

Allar nánari upplýsingar um Allir með verkefnið er að finna hér

Hér má einnig nálgast skemmtilega umfjöllun hjá UMFÍ um Hjólastólakörfuna í Kringlunni

Sækja skyldar greinar
Load More By Jón Björn Ólafsson
Load More In 1. tbl. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Ástæður þess að einstaklingar með fatlanir ættu að taka þátt í íþróttum

Dr. Ingi Þór Einarsson skrifar Það eru margar góðar ástæður fyrir því að fólk ætti að æfa …