Heim 1. tbl. 2025 Fjórir ólíkir keppnisviðburðir um helgina

Fjórir ólíkir keppnisviðburðir um helgina

8 min read
Slökkt á athugasemdum við Fjórir ólíkir keppnisviðburðir um helgina
0
39

Fjórir ólíkir keppnisviðburðir um helgina

Það var líf og fjör í íþróttum fatlaðra helgina, 25. – 25. maí 2025. Í Reykjavík var haldið Flokka og bikarmót ÍF í sundi og Íslandsleikar Special Olympics í nútímafimleikum, listhlaupi á skautum og fyrsta skipti skautahlaupi. 

Í Hafnarfirði fóru fram Íslandsleikar Special Olympics í körfubolta.  

Magnús Orri kíkti á viðburði, tók ljósmyndir og gerði myndband frá helginni.
Myndbandið má sjá hér

Flokka og bikarmót ÍF í sundi Laugardalslaug, Reykjavík

Glæstur hópur keppenda mætti á  flokka og bikarmót ÍF í sundi sem fram fór 24 og 25 maí

Það var Íþróttafélagið Fjörður í Hafnarfirði sem varð bikarmeistari í sundi sextánda árið í röð. Fjörður hlaut 1017 stig, ÍBR (Sundráð Reykjavíkur) 621 stig og  UMFB  60 stig.  

Á mótinu féll eitt Íslandsmet á fyrri keppnisdegi en það var Sonja Sigurðardóttir í flokki S3 sem synti 200 m frjálsa aðferð á 5:06,83.  Góðir gestir mættu á mótið, fimm keppendur frá Færeyjum og fengu þeir þátttöku pening í lok móts.

Hér má nálgast úrslit mótsins:

https://live.swimify.com/…/bikar-og…/events/summary/2/32

Að sögn Kristínar Guðmundsdóttur formanns sundnefndar ÍF gekk mótið mjög vel og hún vildi koma á framfæri þakklæti sundarnefndar ÍF til allra þeirra sem komu að framkvæmd mótsins.

Ollamót Aspar á skautum. Egilshöll, Reykjavík

Íslandsleikar Special Olympics í skautaíþróttum fóru fram 25. maí í Egilshöll. Til heiðurs Ólafi Ólafssyni stofnanda og fyrrverandi formanns Aspar var heiti mótsins, Ollamót Aspar  á skautum. Auk hefðbundinnar keppni, listhlaupi á skautum var í fyrsta skipti keppt í skautahlaupi og var mikil ánægja með viðburðinn. 

Í fyrsta sinn voru sjö iðkendur sem tóku þátt í Level 0 sem er nýjung og byggir á einskonar þrautabraut sem iðkendur fylgja. Fimm þátttakendur tóku þátt í Level 1 og stóðu sig einstaklega vel, fjórir tóku þátt í Level 2, þrír í Level 3 og einn í Level 4.

Mótið fór einkar vel fram að sögn Helgu Olsen þjálfara Aspar og ýmsar nýjungar voru kynntar.   Hún sagði að þjálfarar væru óheyrilega stoltir af öllum iðkendum sem margir náðu persónulegum sigrum á ísnum í dag. Sérstök ánægja var með skautahlaup, nýtt tækifæri hjá skautadeild Aspar en alls voru 10 skráðir þar til leiks.

Ollamót Aspar í nútímafimleikum, fimleikasal Ármanns, Reykjavík

Glæsilegur hópur keppenda mætti til leiks á Íslandsleikum Special Olympics í nútimafimleikum laugardaginn 24. maí. Heiti mótsins var Ollamóti Aspar í nútímafimleikum og Ólafur Ólafsson, Olli, hefði sannarlega verið stoltur af þeim árangri sem náðst hefur frá því þessi grein hóf göngu sína á Íslandi. 

Ísland hefur átt glæsilega fulltrúa í nútímafimleikum á heimsleikum Special Olympics og sífellt fleiri sýna greininni áhuga.  Ragnhildur Sigríður Marteinsdóttur hefur haft umsjón með æfingum í nútímafimleikum. Nútímafimleikar henta öllum og hægt er að aðlaga æfingar eins og hentar hverju styrkleikastigi.

Íslandsleikar Special Olympics í körfubolta,  íþróttahúsi Hauka, Hafnarfirði

Það var mikil körfuboltaveisla Í Ólafssal  þegar Íslandsleikar Special Olympics í körfubolta eða  HaukaSO mótið var haldið í fjórða sinn, laugardaginn 24. maí. Þar mættu til leiks um 70 körfuboltaiðkendur á aldrinum 6-17 ára. Haukar SO voru með fimm lið sem kepptu á móti iðkendum Hauka og Vals. Síðustu leikirnir voru spilaðir sem unified körfuboltaleikir, þar sem fatlaðir og ófatlaðir spiluðu saman í liði. Í salnum var mikið fjör og leikgleði, leikmenn mfl kvk hjá Haukum, Íslandsmeistarar 2025, mættu til þess að hitta keppendur og leyfa þeim að halda á bikurunum og í lokin var pizzuveisla.
Fulltrúar frá Lionsklúbbnum Ásbirni og Kaldá afhentu þátttakendum verðlaunapening í lok móts.  Sérstakt samstarfsverkefni  alþjóðalionshreyfingarinnar, Special Olympics í Evrópu og Special Olympics á Íslandi hófst á árinu og mun standa í þrjú ár og það var sérlega ánægjulegt að fá á staðinn fulltrúa tveggja lionsklúbba í Hafnarfirði.

Bára Fanney Hálfdánardóttir, þjálfari hjá Haukum segir það hafa verið mjög gaman að geta endað tímabilið á svona skemmtilegu móti. Núna fá HaukaSO leikmenn smá sumarfrí frá körfuboltanum en æfingar byrja aftur í september. 

Sækja skyldar greinar
Load More By Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
Load More In 1. tbl. 2025
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Prufa

Prufa dssdgsdggssggsds …