Að tillögu sundnefndar ÍF hefur stjórn sambandsins ákveðið að aflýsa Nýárssundmóti barna og unglinga. Verður þetta í fyrsta sinn sem mótinu er aflýst í rúma þrjá áratugi en þetta skemmtilega mót verður á dagskrá strax aftur í ársbyrjun 2022.
Að tillögu sundnefndar ÍF hefur stjórn sambandsins ákveðið að aflýsa Nýárssundmóti barna og unglinga. Verður þetta í fyrsta sinn sem mótinu er aflýst í rúma þrjá áratugi en þetta skemmtilega mót verður á dagskrá strax aftur í ársbyrjun 2022.
Íslandsmót SSÍ og ÍF í 50m laug hefst í Laugardalslaug í dag. Hér á heimasíðu SSÍ má finnar allar upplýsingar um mótið en sýnt verður frá mótinu á Youtube-rás SSÍ. Úrslit greina má finna hér Sökum sóttvarna eru áhorfendur ekki leyfðir við mótið en ásamt Youtube-rás SSÍ verður RÚV með beina útsendingu frá úrslitum laugardags og sunnudags.
Stjórn Íþróttasambands fatlaðra hefur tekið þá ákvörðun að fresta Sambandsþingi um 6-8 vikur. Þingið átti að fara fram þann 17. apríl næstkomandi en vegna gildandi sóttvarna á Íslandi taldi stjórn ráðlegast að fresta þinginu. Vilji er til þess að halda formlegt þing með þingfulltrúum og því er beðið eftir frekari tilslökunum á sóttvarnarreglum. Nánari upplýsingar um tímasetningu þings verða sendar …
Michel Thor Masselter bætti nýverið Íslandsmetið í 1500m hlaupi í flokki T36 (hreyfihamlaðir). Michel hljóp þá 1500 metrana á Stórmóti ÍR en hann kom í mark á tímanum 6:15,19 mín. Með metinu á dögunum þá hafði hann tvíbætt metið í 1500m hlaupi einnig í 800m hlaupi. Michel var lengst af sundmaður en síðustu ár hefur hann lagt áherslu á frjálsar …
Íslandsmót SSÍ og ÍF í 50m laug sem fara átti fram dagana 9.-11. apríl næstkomandi hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ástæða frestunar er eins og flestum ætti að vera kunnugt vegna nýrrar reglugerðar yfirvalda um sóttvarnarráðstafanir. Í gærkvöldi kom erindi frá SSÍ þar sem skýrt var tekið fram að ÍM50 gæti ekki farið fram helgina 9.-11. apríl og því …
Vinsæl nýbylgja frá Ungverjalandi ryður sér nú til rúms á íþróttasviðinu en sú grein heitir „Teqball“ eða tæknibolti ef svo má að orði komast á íslensku. Teqball er knattspyrnutengd íþrótt með borðtennisívafi þar sem leikmenn mætast með fótbolta við sérhannað borðtennisborð. Ungverjar hafa verið leiðandi afl í greininni en árið 2017 var Federation Internationale de Teqball stofnað í Ungverjalandi. Síðustu …
Ásvallamót SH í sundi fór fram í Hafnarfirði um síðustu helgi. Þrjú ný Íslandsmet í keppni fatlaðra féllu við mótið. Heimamaðurinn Róbert Ísak Jónsson, SH/Fjörður, bætti eigið met í 400m fjórsundi þegar hann synti á 4:53,02 mín. Gamla metið hans var 4:59,70mín. Sonja Sigurðardóttir frá ÍFR setti Íslandsmet í 100m baksundi S4 þegar hún synti á 2:14,44 mín. Fyrra met …
Íslandsmót ÍF í borðtennis 2021 fer fram í íþróttasal ÍFR að Hátúni þann 8. maí næstkomandi. Skráningargögn hafa þegar verið send til aðildarfélaga ÍF. Skráning stendur til 31. mars næstkomandi og skal berast á if@ifsport.is með cc á helgig@landsbankinn.is Nánari dagskrá mótsins verður send út síðar.Ef einhverja vantar skráningargögn má setja sig í samband við if@ifsport.is