Heim 1. tbl. 2026 Lions styrkir heimildamynd Special Olympics

Lions styrkir heimildamynd Special Olympics

4 min read
Slökkt á athugasemdum við Lions styrkir heimildamynd Special Olympics
1
118

Anna Karólína Vilhjálmsdóttir skrifar

Á ársþingi Lions á Íslandi, laugardaginn 30. maí fékk Magnús Orri Arnarson, afhenta myndavél til notkunar m.a. við heimildamyndagerð vegna heimsleika Special Olympics í Chile 2027.  Magnús Orri gerði heimildarmyndina „Sigur fyrir Sjálfsmyndina“ árið 2025 um vetrarheimsleika Special Olympics á Ítalíu en myndin var unnin í samstarfi við Special Olympics á Íslandi. Myndin var sýnd í Bíó Paradís og á RÚV og vakti mikla athygli. Magnús Orri hefur nú ákveðið að gera aðra heimildarmynd, Sigur fyrir Sjálfsmyndina, hluti 2 en þar verður efnið tengt undirbúningi og þátttöku Íslendinga á heimsleikum Special Olympics í Santiago Chile í október 2027.

Magnúsi Orra hafði dreymt um að geta fjármagnað kaup á ákveðinni tegund Canon myndavélar til að nýta við þessa vinnu.  Leitað var ráðgjafar hjá Guðrúnu Björt Ingvadóttur hvort Lionshreyfingin gæti stutt þetta verkefni og hún kynnti málið innan Lions á Íslandi. Draumurinn rættist hjá Magnúsi Orra á ársþingi Lions þegar fulltrúar Lionsklúbbsins Ásbjörns afhentu honum slíka vél. Lionshreyfingin öll hefur staðið að baki ÍF og Special Olympics á Íslandi í áratugi auk þess sem aðildarfélög ÍF hafa notið stuðnings lionsklúbba í heimabyggð. Einnig hafa fulltrúar Lions staðið fyrir viðburðum og aðstoðað við mótahald ÍF og aðildarfélaganna. Magnús Orri fékk einnig sérstakt skjals sem afhent var af Önnu Fr Blöndal fjölumdæmisstjór Lions á Íslandi þar sem fram komu hamingjuóskir og hvatning frá Lionshreyfingunni á Íslandi

Magnús Orri þakkaði ómetanlegan stuðning og sýndi myndband sem hann hafði gert sérstaklega til kynningar fyrir  þingfulltrúa og fólk fagnaði með miklu lófataki.  

Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi, þakkaði fulltrúum Lionsklúbbsins Ásbjörns fyrir stuðning við heimildarmyndina og Lionshreyfingunni á Íslandi fyrir áratuga mikilvægt samstarf við ÍF og Special Olympics á Íslandi. Með Magnúsi á þessum viðburði var einnig móðir hans Ingibjörg G Marísdóttir sem var yfir sig stolt af sínum manni.

Það ríkti sérstakur andi á þessu ársþingi sem fulltrúar Special Olympics á Íslandi sóttu á laugardaginn. Frábærar móttökur og stuðningur þingfulltrúa veitti  Magnúsi Orra mikla gleði og hvetur hann til áframhaldandi verka.

Sækja skyldar greinar
Load More By Thelma Grétarsdóttir
Load More In 1. tbl. 2026
Comments are closed.

Skoðaðu einnig

Nýtt skref stigið hjá skautadeild Aspar: Unified Skautahlaup

Ollamót Aspar / Íslandsleikar Special Olympics í listhlaupi á skautum og skautahlaupi fóru…