Screenshot
Sunnudaginn 14. júní hélt Fjörður Kastmót í frábæru veðri á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika.
Keppt var í kringlukasti, sleggjukasti og keilukasti (e. club throw). Þetta var í fyrsta sinn á Íslandi þar sem keppt er í keilukasti löglega. Þeir Hrólfur Geir Björgvinsson og Sigurjón Ægir Ólafsson tóku þátt í greininni en þeir köstuðu úr kaststólnum sem Ófeigur lét gera fyrir Suðra. Stóllinn hefur strax nýst vel þar sem hægt er að nota hann til að keppa í öllum kastgreinunum í frjálsum íþróttum.
Á mótinu voru sett 4 ný Íslandsmet:
- Keilukast: Sigurjón Ægir Ólafsson, F34 – 11.39m
- Keilukast: Hrólfur Geir Björgvinsson, F36 – 10.16m
- Kringlukast: Hrólfur Geir Björgvinsson, F36 – 13.68m
- Kringlukast: Emil Steinar Björnsson, F20 – 25.80m






